Heimatilbúnar gjafir eru oft gæddar meiri ljóma og karakter en aðrar gjafir. Við rákumst á frábæra hugmynd sem á sannarlega vel við í janúar þegar það er kalt úti og dimmt!
Hugmyndin er sem sagt að búa til súkkulaði með sykurpúðum – þannig að það þarf bara að hella heitri mjólk yfir „gjöfina“ í bolla og þá er kominn ilmandi kakóbolli sem ekki er séns að standast.

Svona er ferlið:
Bræddu eitthvert súkkulaði sem þér þykir reglulega gott.

Bættu dálitlu af kakói og flórsykri saman við.
Mótaðu svo hæfilega mola og gerðu þá undursamlega fallega.

Myndirnar segja alla söguna:

og að lokum…





















