Nú, eða eiginmanninum, frænda, vini eða þeim sem þér þykir vænt um. Ilmurinn er óumdeilanlega einn best heppnaði herrailmurinn á markaðnum og er ekki af ástæðulausu að einn heitasti karlmaður í heimi; Ryan Reynolds sé fenginn til að auglýsa hann.
Hvorki meira né minna en 60 milljónir glasa hafa selst síðan ilmurinn var fyrst kynntur árið 1998 og hann er enn meðal tíu söluhæstu ilmvatnanna, sígildur ilmur sem blæs mönnum þor og áræði í brjóst.
Nú hefur Boss gengið lengra og býður sérstaka útgáfu Boss Bottled þegar degi tekur að halla: Boss Bottled. Night.
Nýi ilmurinn einkennist af ofurheillandi og úthugsaðri samsetningu ilmkenndra topptóna og djúpra viðartóna í grunni.
Andlit ilmsins og stjarna sjónvarps- og prentmiðlaherferðarinnar er leikarinn Ryan Reynolds sem með stíl sínum, útgeislun og karlmannlegri dirfsku er eins og fæddur til að vera hin nútímalega og fágaða ímynd merkisins.

Ilmurinn
Ilmurinn er mjúkur, sléttur og fágaður ilmur og er honum oft lýst þannig að hann eins og stækki sjálfsörugga og ákveðna persónu. Boss Bottled. Night hefur skarpari, beittari og karlmannlegri einkenni sem glæða notandann persónutöfrum sem orka sterkt á aðra.
Boss Bottled var stefnumótandi áfangi í ilmsögunni þegar ilmurinn kom á markað árið 1998. Mjúkur vanillukenndur blærinn var alger nýlunda á þeim tíma. Boss Bottled. Night. er jafn djarfur ilmur sem setur ný viðmið með karlmannlegum ilmeiginleikum sínum. Þar skiptir mestu samsetning kröftugra grænna og ilmandi tóna með birki og kardimommu ráðandi í topptónum og hjarta ilmsins en djúpa viðar- og moskustóna í grunninum.
Viðartegundir eru lykillinn að ilmeiginleikum Boss Bottled. Night. kynnir til sögunnar eftirgerð nýrrar höfugrar viðartegundar, louro amarelo. Þegar louro amarelo blandast moskustónunum og síðan hinum rokgjarnari topptónum skapast ilmur sem er í senn afar karlmannlegur og hrífandi.
Boss Bottled. Night. Er fáanlegur sem rakspíri í 30 ml og 50 ml flöskum og einnig sem After Shave Lotion eftir rakstur – 50 ml. After Shave Balm, krem eftir rakstur 75 ml. Einnig sem Deo Stick og sturtugel.




















