Svefnherbergið er bara til að sofa í – hjá mörgum. „Bara“er orð sem ekki á heima hér því þetta „bara“ í þessu samhengi er um það bil 36% lífsins. Við verjum tæpum helmingi lífs okkar sofandi. Þess vegna ætti svefnherbergið alla vega að vera notalegt!
Þessi 36% sem vísindamenn tala um eru eingöngu miðuð út frá þeim tíma sem við verjum steinsofandi inni í svefnherberginu. Auðvitað erum við töluvert meira þarna inni – við ýmsar iðjur.
Það þarf ekki að vera dýrt að „poppa“ svefnherbergið aðeins upp:

Flestir geta skellt nýrri málningu á veggi og loft. Það sparast töluverður aur á því að gera þetta sjálfur. Málning er ekki endilega svo dýr.
Þegar maður málar má nýta tækifærið og gera skemmtileg mynstur á veggina. Eitthvað snjallt sem manni dettur í hug.

Pússaðu gömlu húsgögnin og lakkaðu upp á nýtt. Þannig öðlast ýmis húsgögn nýtt líf. Það er óþarfi og aukinn kostnaður að þurfa að kaupa eitthvað nýtt.
Hengdu eitthvert fallegt efni eða blúndur yfir rúmið sjálft. Þannig verður til dálítið herbergi inni í herberginu.
Litir! Þeir gera kraftaverk. Ef þú átt fullt af hvítum sængurfötum er ekki úr vegi að skreppa út í föndurbúð og kaupa fataliti og lita allt þetta hvíta lín.
…ekki er verra að taka lífinu létt og minna sjálfan sig á prakkarastrikin hennar ömmu gömlu!
Láttu stækka einhverja mynd úr myndasafninu – mynd sem vekur upp góðar minningar – og hengdu hana upp á vegg í svefnherberginu.




















