The Fun Theory eða skemmtilega kenningin eins og hún gæti útlagst á íslensku, er hugarfóstur Volksvagen og gengur út á breyta hegðun fólks til hins betra, virkja það í hreyfingu og fá almenning til að ganga betur um umhverfið sitt.
Þeir sem standi á bak við kenninguna hafa einnig haldið keppni. Allt sem keppendur þurftu að gera er að sanna kenninguna með því að breyta einhverju leiðinlegu og hversdagslegu í skemmtilegan hlut, eins og t.d. að fara í belti, henda í ruslið og fá stráka til að lyfta upp klósettsetunni þegar þeir pissa.
Spurning hvort Íslendingar ættu að taka sér þetta til fyrirmyndar?




















