18 ára stúlka hefur lagt fram kæru gegn Agli Einarssyni og Gurrý Jónsdóttur, kærustu hans vegna nauðgunar. Segir ákærandi Egil hafa nauðgað sér en kærustu hans hafa verið viðstadda og neitað sér um hjálp.
Stúlkan hitti parið í Eldhúspartíi FM957 á Glaumbar um síðustu helgi og yfirgáfu þau staðinn saman. Samkvæmt frétt Eyjunnar mun stúlkan hafa borið traust til Gillz og því farið með parinu í bíl inn í Kópavog, þar sem hún segir atvikið hafa átt sér stað. Parið hefur kært hana á móti fyrir rangar sakargiftir.
Eftirfarandi yfirlýsing hefur borist frá Agli Einarssyni:
„Yfirlýsing í tilefni þess að ég og unnusta mín höfum verið kærð til lögreglu vegna nauðgunar.
Það er refisvert að saka fólk ranglega um lögbrot. Það er jafnframt refsivert að hafa samband við handrukkara í þeim tilgangi að kúga fé út úr fólki. Þær ásakanir sem á mig hafa verið bornar eru fráleitar og engar líkur á að þær muni leiða til opinberrar ákæru. Tilgangurinn með þessum ásökunum er því augljóslega ekki að ná fram ákæru heldur einvörðungu að sverta mannorð mitt. Af tillitssemi við hlutaðeigandi mun ég ekki tjá mig meira um þessi mál opinberlega að svo stöddu. Ég hef falið lögmanni mínum að kæra viðkomandi fyrir rangar sakargiftir.
Virðingarfyllst
Egill Einarsson“
Yfirheyrslur fóru fram í dag.




















