Gréta Salóme vann hug og hjörtu Íslendinga í gærkvöldi þegar hún flutti lag sitt „Mundu eftir mér“. Gréta sannaði ekki aðeins hversu frábær lagahöfundur og söngkona hún er heldur hitti texti lagsins margan manninn beint í hjartastað en hún samdi lagið og textann sjálf. Það er djúp saga á bak við lagið en Gréta fékk innblásturinn að því þegar hún sat 10 daga tónlistarnámskeið í Skálholti og kynntist þar sögu þeirra Ragnheiðar Brynjólfsdóttur og Daða Halldórssonar enda stórkostleg saga af forboðnum ástum, brostnum draumum og reiði föður Ragnheiðar, þáverandi biskups, í garð dóttur sinnar.
Hvernig varð lagið til?
„Sagan á bak við lagið hefur rosalegt persónugildi. Ég var heltekin af sögu Ragnheiðar og Daða enda mögnuð saga. Það var mjög sérstakt hvernig lagið varð til en ég var undir miklum áhrifum af þessari sögu, trú og íslenskri tónlist. Sagan er rosalega sorgleg svo við breytum kannski aðeins textanum við lagið og gerum hann jákvæðari.“
Hvernig leið þér þegar úrslitin voru tilkynnt?
„Þetta var ótrúlega dýrmætt stund fyrir mig.“ Segir Gréta og heldur áfram. „Ég er búin að vera lengi í tónlist og þetta hefur verið langt ferli.Ég skal samt alveg viðurkenna að ég er mjög fegin að þetta gerðist ekki fyrr því núna fyrst finnst mér ég vera tilbúin í þetta.“
Verður lagið flutt á ensku?
„ Ég veit ekki hvort ég ætli að enska lagið. Ég einsetti mér það algjörlega að hugsa ekki svona langt og einbeitti mér bara að söngvakeppninni og er eiginlega ekki komin svo langt. Ég er enn að komast niður á jörðina eftir gærkvöldið en ég mun íhuga það vel og vandlega og tilkynna það fljótlega þegar ákvörðunin hefur verið tekin.“
Ætlar þú að taka þér verðskuldað frí og safna kröftum?
„Ég held við séum alveg hætt við fríið sem við ætluðum í. Það er rosaleg vinna framundan og ég þarf að horfa á lagið upp á nýtt, hugsa hvað ég vil gera, hvort ég vilji breyta einhverju eða bæta eitthvað. Við þurfum að skila því fullkláruðu og við höfum ekki mikinn tíma til þess. Ég þarf að huga að öllu sem þarf í þessum undirbúning.“
Við óskum Grétu góðs gengis og við hlökkum til að fylgjast nánar með þessari mögnuðu tónlistarkonu





















