Gúrý eins og hún er alltaf kölluð fékk þær fregnir í gær að hönnun hennar verður sýnd á tískuvikunni í Kaupmannahöfn og sagðist við fregnirnar brosa hringinn, vera með fiðrildi í maganum, hlæja upphátt, tárast og allt í bland. Við tókum stöðuna á þessum flotta fatahönnuði.
Guðrún Finnbogadóttir segist vera búin að hanna síðan hún kunni að klippa með skærum: „Ég klippti til sokka og annað til að búa til outfit á barbídúkkurnar mínar. Svo á ég svo yndislega mömmu sem sat oftar en einu sinni við saumavélina fyrir mig að búa til allskonar dress sem mér datt í hug. Því ég var ekki sú þolinmóðasta þegar að það kom að því að sauma!“
Ertu búin að finna framtíðardjobbið?
Í framtíðinni vonast ég til að hönnunin mín verði seld út um allan heim.Mig langar svo að opna búð á Íslandi með manninum mínum honum Jónasi Breka, þar sem við seljum skart eftir hann (Breki design) + Zero6 skart línuna sem við gerum saman og svo auðvitað fatalínuna mína.
Hvernig er verkferlið hjá þér?
Þegar ég fæ hugmynd þá byrja ég að hanna hana, teikna og geri snið. Finn svo efnaprufur og þreifa mig áfram. Svo þegar ég er sátt við útkomuna læt ég saumakonunar mínar í Víetnam gera sýnishorn fyrir mig. Og ef allt er eins og það á að vera þegar þær eru búnar með sýnishornið, þá fer framleiðslan í gang.
Hvaðan sækirðu innblástur í hönnunina?
Ég fæ innblástur allstaðar frá, myndböndum, bíómyndum, en oft sé ég eitthvað secondhand/vintage sem ég vinn út frá og geri í nýtískulegri stíl. Þegar að ég fæ „flugu“ í hausinn þá sofna ég ekki fyrr en ég hef komið henni í framkvæmd.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig sem hönnuð að fá að sýna á tískuvikunni?
Ég og Breki sóttum um að komast á tískuviku með skartið hans og skartið okkar, en svo sagði Sigrún Rut vinkona mín mér að ég ætti að sækja um að sýna fötin mín líka. Þetta er vissulega svolitið stórt skref fyrir mann að sýna öllum hvað þú ert að gera. Þetta er náttúrulega „litla“ barnið manns. Þannig að fá að komast inn á Terminal 2 sem er heitasti staðurinn til að vera á Fashion Week hérna í Köben er bara svo æðislega meiriháttar mikil viðurkenning fyrir mig!
Hvernig er að blanda saman framanum og fjölskyldulífi?
Við fjölskyldan erum nýkomin frá Víetnam þar sem við vorum í eitt og hálft ár. Ég þrammaði um markaðina í 35 stiga hita og raka með einn 4 mánaða bundinn framan á mér, leiðandi eina 5 ára og með tvær saumakonur í farabroddi að finna efni og annað.
Svo var maður inni á saumastofu með eina viftu í gangi, skoðandi sýnishorn, efnaprufur, gefandi pela og hlustandi á: „Mamma, ertu ekki að verða búin?“ á 10 mínútna fresti í kannski í 3 tíma.
Ef ég gat þetta 3 sinnum í viku í heilt ár get ég auðveldlega blandað saman fjölskyldulífinu og framanum!Það er líka svo gott að eiga maka sem er í sama bransa’ og maður sjálfur, þá er skilningurinn meiri í sambandi við pressuna sem getur fylgt þessu og annað.
Netverslun Gúrýar, www.guryonline.comverður kominn í gang núna í febrúar.




















