Í kvöld er úrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins og verður keppnin með þeim glæsilegri sem við höfum séð enda er lokakvöldið haldið í Hörpunni þetta árið. Þau sjö lög sem munu keppa eru hverju öðru betra og engin leið að sjá hvert þeirra vinnur. Bleikt skellti sér því á Trúnó með Haffa Haff og fékk hann til að rýna í lög kvöldsins:
Aldrei sleppir mér – Heiða og Guðrún Árný
„Ég held það eigi ekki séns. Ekki ef við berum lagið saman við hin lögin. Dívunum á ekki eftir að ganga eins vel og ef Gréta væri með þeim, þrjár söngkonur eru mikið betri en tvær. Þetta er lag sem ég held að eigi eftir að hverfa, það skilur ekki mikið eftir. Ég naut þess samt að hlusta á stelpurnar og atriðið þeirra verður örugglega fallegt en ég held þær fari ekki langt, sérstaklega fyrst Gréta ætlar ekki að syngja með.“
Hugarró – Magni
„Þetta lag hentar Magna fullkomlega. Mér finnst það samt dálítið sorglegt en Magni er samt svo kúl og svo næs. Kannski hefði það geta verið aðeins skemmtilegra en hann er auðvitað að syngja um tilfinningar. Það sem Magni hefur með sér eru vinsældirnar, konurnar eiga eftir að kjósa hann. Mamma mín er á örugglega eftir að kjósa þetta lag og hún myndi örugglega kjósa hann jafnvel þótt ég væri að keppa.“
Stund með þér – Rósa Birgitta
„Rósa er stórkostleg. Ég vildi bara óska að lagið leyfði hæfileikum hennar að njóta sín. Hún er svo hæfileikarík og gæti farið langt. Hún lýtur vel út, með rauða hárið sitt. Lagið er sætt en ég held að það hverfi í skugga sterkari laganna. Ég man eftir Rósu en ég man ekki eftir laginu, þú þarft að muna eftir því en ekki bara flytjandanum.“
Hey – Simbi og Hrútspungarnir
„Hey er eitt af mínum uppáhalds lögum. Mér finnst það vera óslípaður demantur og ég held að fólkið í Aserbaídsjan eigi eftir að vera furðulostið. Alveg eins og með Lordí, þú getur ekki útilokað þá strax. Mér finnst Simbi og strákarnir geðveikir. Ég myndi setjast niður með þeim, fá mér bjór og syngja „Hey“ með þeim, ég held að allir myndu gera það.“
Hjartað Brennur – Regína Ósk
„Aftur erum við með mjög sterkan flytjanda. Regína veit hvað hún er að gera, fólkið getur treyst henni og það veit að ef hún fer út þá á hún eftir að standa sig stórkostlega og það skiptir líka máli. Hún á eftir að standa sig stórkostlega, hún er mjög hæfileikarík og ég nýt lagsins. Þetta er jákvætt lag og það er eitthvað sem við þurfum.“
Stattu upp – Blár Ópal
„Strákarnir eru súpersætir og þeir stóðu sig vel á sviðinu. Þeir virkuðu samt örlítið stressaðir fyrsta kvöldið þeirra en það er allt í lagi því það styrkir þá. Þeir þurfa að vera aðeins sterkari og þá myndu þeir eiga alla. Ég held samt að þeir eigi séns og atriðið þeirra var flott“
Mundu eftir mér – Gréta Salóme og Jónsi
„Mjög sterkt lag. Jónsi á marga aðdáendur og Gréta er stjarna keppninnar. Þau eiga mjög góða möguleika. Þetta er mjög sterkt lag og þú veist að því á eftir að ganga vel. „
Hver heldur þú að vinni?
„Ég er rebel í mér og mig langar að sjá „Hey“ fara út. Mér finnst við þurfa á því að halda, okkur vantar eitthvað fönký og öðruvísi. Ég myndi líka vilja sjá „Stattu upp“ fara út af því að það er skemmtilegt. Ég myndi vilja sjá annað hvort „Hey“, „Stattu upp“ eða „Hjartað Brennur“ sigra þetta, jafnvel þó Gréta Salóme sé stjarnan í ár. „Mundu eftir mér“ er flott lag og það kæmi ekki mikið á óvart ef það myndi vinna. Lagið er það töff, það virkar og mér þætti skrítið ef það myndi ekki vinna.“




















