Kanadískar konur hafa tekið sig til og stofnað samtök til styrktar konum sem fá krabbamein í brjóstið.
Samtökin heita „Stilettos for the Cure“ og sérhæfa þau sig í að selja notaða háhæla skó. Þannig geta háir hælar, sem annars myndu hýrast inn í skáp, fengið framhaldslíf á fótum nýs eiganda og gefið konu með brjóstakrabba von um áframhaldandi líf.
Þetta frábæra framtak hóf göngu sína í byrjun árs 2011 en Tamara McKee og Tina Dezi standa á bak við góðgerðarsamtökin. Þær vildu gera góðverk og fannst alveg tilvalið að selja notaða hluti á borð við skó og töskur, enda ófáar konurnar sem eiga fulla skápa af þessum dásamlegu aukahlutum og vita ekkert hvar þær eiga að koma nýju dýrgripunum fyrir.

Á fyrsta góðgerðarkvöldi þeirra seldu þær yfir 300 pör af skóm og söfnuðu tæplega tveimur milljónum króna og runnu þær óskertar til málstaðarins.
Það má því með sanni segja að háir hælar geri kraftaverk, hvort sem það er fyrir lágvaxnar konur eða konur sem fá brjóstakrabbamein. Spurning um að setja af stað slíkt framtak á Íslandi? Við skorum á félagasamtök til að gera slíkt hið sama hér á landi!




















