Nestishálfmánar eru sniðugir sem ódýrt nesti. Setja má heilhveiti í stað hveitis ef fólk vill og þá má auðveldlega frysta og lauma frosnum í nestisboxið á morgnana.
Innihald deigsins:
2 1/2 bolli hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2/3 bolli grænmetisolía
1 bolli grískt jógúrt
1/2 bolli AB mjólk
1 eggjarauða
Sesamfræ
Það má sleppa grísku jógúrtinni og nota 1 1/2 bolla af AB mjólk í staðinn og aðeins meira hveiti.
Fylling:
125 gr fetaostur (hreinn, ekki í olíu, brotinn niður)
1 bolli pizzu ostur
1/2 búnt steinselja (smásöxuð)
Deigið gerir um 20-25 hálfmána og er ferlið svona:
Blandið hveitinu, olíunni, AB mjólkinni, grísku jógúrtinni, saltinu og lyftiduftinu vel saman. Í aðra skál skal blanda fetaostinum, steinseljunni og pizzuostinum saman.
Rífið lítinn bút af deiginu, fletjið bútinn út og setjið svo fyllinguna fyrir miðju og lokið deiginu eins og litlum hálfmána. Penslið smá eggjarauðu á og stráið sesamfræjum yfir.
Bakið við 200 gráður þar til þeir verða gullbrúnir eða í um 20 minútur.
Það má líka nota saxaðar svartar olífur eða steikt hakk með lauki, hvítlauki og steinselju, eða bara súkkulaði bita sem fyllingu!




















