Hanna Rún: „Danskjólarnir kosta allt að hálfri milljón“
06.02.2012 Ritstjórn

Fimmtánfaldur Íslandsmeistari í dansi! Við Íslendingar erum ríkir af framúrskarandi og efnilegu fólk á öllum sviðum, líka í dansinum. Hanna Rún Óladóttir er einn efnilegasti dansari landsins en hún hefur dansað sig á toppinn frá 4 ára aldri. Í dag er hún 21 árs, fimmtánfaldur Íslandsmeistari og í nóvember 2011 var hún, ásamt dansherra sínum, kjörin Norður-Evrópumeistari. Hanna Rún segir okkur frá dansinum, velgengninni og umfram allt, kjólunum.

Hanna Rún segir í viðtali við Bleikt að hún hafi verið að koma fram Belgíu með dansfélaganum: „Við Siggi vorum að koma heim frá Belgíu en þar vorum við að keppa á Grand Slam móti ásamt þeim bestu í dansinum. Þetta eru mjög stór og sterk mót en þarna voru mætt 6 pör af þeim bestu ásamt 20 stjörnupörum og auðvitað fleiri keppendum. Okkur gekk ekki eins vel og við hefðum viljað, en okkur gekk ekki illa. Við hefðum viljað ná aðeins lengra. Við gerum kröfur og erum ströng við okkur. Við ætlum alla leið og erum dugleg að hvetja hvort annað áfram. Þetta er samvinna, enda erum við tvö í þessu.“

hanna 2 inni

Hanna Rún er trúlofuð dansfélaganaum, Sigurði Þór

Hanna Rún og dansfélagi hennar, Sigurður Þór Sigurðsson, hafa dansað saman síðan í Janúar 2009 en láta sér dansinn ekki duga því þau eru einnig trúlofuð og saman eru þau staðráðin í því að ná á toppinn og ætla ekki að hætta fyrr en þau hafa unnið heimsmeistara titillinn. Þess vegna æfa þau 6 sinnum í viku, nokkra tíma í senn.

hanna 3 inni

„Við mætum bæði í einkatíma og á hópæfingar. Við æfum okkur einnig mikið sjálf og þegar það er stutt í keppni leggjum við enn harðar að okkur. Um þessar mundir erum við að undirbóka okkur fyrir Íslandsmeistaramótið sem verður næstu helgi, þá kemur í ljós hvort ég hreppi Íslandsmeistara titilinn sextánda árið í röð. Ferðinni er svo heitið til Kaupmannahafnar þar sem við munum keppa á öðru Grand Slam móti og aðeins þremur vikum seinna förum við til Frakklands að keppa. Fljótlega eftir það keppum við á Bikarmeistaramótinu og um páskana stefnum við á Evrópumeistaramótið í Barcelona,“ segir Hanna Rún.

Æfingarnar eru þó ekki það eina sem skiptir máli en þau passa bæði upp á mataræðið og nota fæðubótarefni frá Hreysti til þess að viðhalda orku og einbeitningu en þau þurfa svo sannarlega á allri sinni orku að halda enda munu þau ferðast út og keppa í hverjum mánuði þetta árið.

„Ég á yndislega fjölskyldu sem ég elska af öllu mínu hjarta. Þau styðja mig og Sigga 110% og gera allt sem þau geta til að hjálpa okkur. Þau vilja sjá okkur fara alla leið á toppinn og styðja okkur ekki bara andlega heldur líka fjárhagslega. Ég gæti þetta aldrei ein enda svo margt sem þarf að greiða, allar utanlandsferðirnar, hótelin, leigubílarnir, danskjólarnir, keppnisgjöldin og danstímarnir hérlendis og erlendis.“

Það ríkir mikill kærleikur í fjölskyldu Hönnu Rúnar en það eru ekki eingöngu foreldrar hennar sem styðja hana. Hanna Rún á tvær systur sem eru einnig duglegar að aðstoða hana og hjálpa til við hvað sem er, ekki aðeins keppnisundirbúning.

hanna 4

En hvernig eru hinir glæsilegu danskjólar og dansskór?

„Kjólarnir koma dýrir og ódýrir. Þeir geta kostað allt að hálfa milljón, stundum meira og stundum minna. Kjólarnir eru skreyttir Swarovski kristöllum og fer það eftir magni steinanna hversu dýrir kjólarnir geta verið. Skóparið kostar í kringum 20 þúsund krónur. Þeir eru misjafnir og sumir endast betur en aðrir. Það skiptir miklu máli að vera í góðum skóm og gott er að eiga eitt æfingarpar og annað keppnispar enda skiptir útlit skóna miklu máli þegar keppt er. Við Siggi notum Supadance skóna og eru þeir að okkar mati langbestu dansskórnir.“

Hanna Rún segir að dans sé fyrir unga sem aldna og að allir geti lært listina. Hvetur hún alla til að prófa þetta enda er þetta, að hennar sögn, skemmtileg íþrótt.

„Það er aldrei of seint að byrja, þetta er rosa gaman og auðvitað er þetta frábær hreyfing fyrir líkamann“

Ritstjórn
18.5.2012

Karen og María senda Gosling afmæliskveðjur!

gosling

Karen og María bjuggu til afmæliskveðju í myndbandsformi handa Erni Jónssyni sem er betur þekktur sem Gosling! Hann er 15 ára í dag og óska þær honum INNILEGA til hamingju! (…og við líka…)  

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]