Naglaskóli LCN hjá snyrtistofunni Heilsu og fegurð hefur verið starfræktur í mörg ár og útskrifast nemandinn sem naglafræðingur með alþjóðlegt diplóma. Er skólinn starfræktur allt árið og er námið á sama verði síðan 2001!

Linda S. Aðalbjörnsdóttir segir mikla aðsókn vera í skólann en hún hefur útskrifað mjög marga nemendur síðan þær opnuðu. Segir hún nemendur hafa sveigjanleika þegar kemur að læra, en þær mega koma alla virka daga og á miðvikudagskvöldum.

„Við kennum bæði ásetningu á fingur og tær, ásamt lagfæringum og styrkingu nagla,“ segir Linda. „Það fer eftir hvernig nemendum gengur hversu lengi þeir þurfa að vera hjá okkur. Sumar koma 6 sinnum og aðrar 26 sinnum.“

Aðspurð um hvernig námið gengur fyrir sig segir hún að nemendur læri naglaásetningu, bæði tærar og french manicure, naglastyrkingu, lagfæringu, lengingu, skreytingu og lökkun. „Svo fer nemandinn í próf þegar hann telur sig tilbúinn til þess og í samráði við kennarann. Þegar hann útskrifast sem naglafræðingur fær hann alþjóðlegt diplóma sem er viðurkennt af LCN í Þýskalandi. Þá getur hann eða hún opnað sína eigin stofu eða unnið á öðrum stofum eða hvað sem honum dettur í hug.“
Sum stéttafélög styrka þetta nám og hvetur Linda þá sem hafa áhuga að athuga hvort viðkomandi sé í slíku stéttafélagi. Einnig bendur hún á að hún hafi ekki hækkað verðið á náminu síðan 2001, sem hlýtur að teljast sjaldgæft í íslensku samfélagi í dag.
Miklir möguleikar eru fyrir konur sem útskrifast úr skólanum sem er staðsettur í Turninum, Kópavogi á annari hæð.

Kennarar eru:
Linda S. Aðalbjörnsdóttir
Förðunar- og naglasérfræðingur-með kennararéttindi frá LCN í Þýskalandi og LCN Master Trainer
Anna Dóra Valsdóttir
Naglasérfræðingurmeð kennararéttindi frá LCN í Þýskalandi.
Hér er HEIMASÍÐA og FACEBOOKSÍÐA
Síminn hjá Heilsu og fegurð er 568-8850 og 899-8090 og er bent á hann til að skrá sig eða á tölvupóstfangið linda@heilsaogfegurd.is




















