Rakel Ósk og Gerður Huld eru tvær ungar og ákveðnar stelpur sem ákváðu í sumar að stofna fyrirtæki. „Hugmyndin kom í raun og veru alveg óvart upp, við vorum ekkert á leiðinni í neinn bisness“.
„Við kynntumst í mömmuhóp inni á Draumabörnum þegar við vorum óléttar af börnunum okkar og út frá því urðum við mjög góðar vinkonur“. Báðar atvinnulausar, nýkomnar úr fæðingarorlofi og í raun og vera var enga vinnu að fá sem vakti áhuga stelpnanna.

„Hugmyndin kviknaði inni á veitingastað í hádegi eitt sinn þegar við vorum að fá okkur að borða. Rakel stakk upp á því að opna verslun sem myndi selja „fancy“ hjálpartæki og væri elegant og flott“.
„Og mér fannst hugmyndin svo frábær að við ákváðum að fara að vinna í þessu“ segir Gerður.
Við tók margra mánaða rannsóknarvinna á því hvað væri í boði hérna á Íslandi og hvað væri í boði úti í hinum stóra heimi. „Við komumst að því að fólk er tilbúið að borga aðeins meira fyrir dótið sitt og fá almennilega gæðavöru í stað þess að borga minna og fá þá endingarminna dót, t.d. með snúrum sem eru alltaf að slitna og rafhlöðum sem þarf að vera endurnýja“ segir Rakel.
Ferlið tók þónokkuð langan tíma og voru Rakel og Gerður í allt sumar að leggja drög að fyrirtækinu sínu og lentu á nokkrum hindrunum á leiðinni en allt gekk svo upp í lok sumars og þegar þær voru búnar að skipuleggja sig var farið í að panta vörurnar.
„Þetta hefur bara gengið alveg rosalega vel síðan, við erum núna búnar að opna vefverslunina www.blush.is og erum svo á kvöldin og um helgar í saumaklúbbum og partýum að kynna vörurnar okkar, og það kemur kannski ekki á óvart en þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt.”
Blush byggist mest á svokölluðum heimakynningum. Þá koma stúlkurnar á staðinn og kynna vöruna fyrir fólkinu að kostnaðarlausu. Í lokin býðst öllum að versla það sem þeim þykir fallegt og spennandi.

Það er að sjálfsögðu mikil vinna á bakvið það eitt að eiga fyrirtæki, pappírsvinna og þessháttar en þá kemur sér vel að eiga góða að, „Systir mín hefur verið að aðstoða okkur með bókhaldið núna fyrst til að byrja með en svo tekur Rakel við þegar hún er búinn með skólann,“ segir Gerður, en Rakel er að læra fjámálatengd fög.
„Þetta var í rauninni bara svona klikkuð hugmynd sem varð síðan að veruleika, okkur hefur báðum oft langað að gera eitthvað svona og talað um að opna verslanir og þess háttar en það verður aldrei neitt úr því!
En í þetta skipti ákváðum við að vera DOER’S en ekki THINKER’S.”




















