Helga Marín kemur frá Dubai til að kenna okkur lífsstílsbreytingar gegnum hugarfarið
23.01.2012 Ritstjórn

„Ég kem hingað til lands þrisvar á ári og held þá eins mörg námskeið og ég get. Ég er í raun og veru að færa mig úr sólinni í snjóinn og öfugt þegar ég flakka svona á milli Íslands og Dúbai. Það virkar vel og er skemmtileg tilbreyting,“ segir Helga Marín semstendur fyrir námskeiðinu „Áramótaheitin og hvernig á að standa við þau“ í líkamsræktarstöðinni World Class fimmtudaginn 2. febrúar og þriðjudaginn 7 febrúar. Á námskeiðinu hjálpar Helga Marín fólki að komast inn í nýjan lífsstíl og viðhalda honum.

Lífsstíll og streita

Helga Marín hefur búið í Dubai í tólf ár og rekur þar sitt eigið fyrirtæki, Health, Mind & Body þar sem hún býður bæði fyrirtækjum og einstaklingum upp á allskonar ráðgjöf og aðstoð við lífsstílsbreytingar, heldur námskeið og fyrirlestra. „Ég hef sérstöðu á mörgum sviðum. Á heilsusviðinu hjálpa ég fólki að breyta um lífsstíl, skipta um mataræði og komast inn í hreyfinguna,“ útskýrir Helga Marín.

„Á sviði sjálfseflingar kenni ég fólki að vera öruggara með sjálft sig, koma fram og finna sjálfa sig og sinn tilgang í lífinu. Í þriðja lagi er svo streitan. Fyrirtæki fá mig mikið til að halda námskeið um streituna og hjálpa starfsfólkinu að breyta upplifun sinni og sjá raunveruleikann í nýju ljósi til að finna fyrir minni streitu. Í fjórða lagi er svo heilsan og hvernig einstaklingar geta tekið þátt í að lækna sig af sjúkdómum.

Hér á landi hef ég nokkrum sinnum verið með fyrirlestra í Ljósinu. Framtíðardraumurinn er að vinna með spítulum í að innleiða meiri fræðslu um hvernig sjúklingar geta tekið þátt í heilunarferlinu bæði með bættu mataræði og breyttu hugarfari,“ segir Helga Marín.

Vill vekja fólk til umhugsunar

Helga verður hér á landi út febrúar og mun standa fyrir margskonar námskeiðum en á fyrsta námskeiðinu ætlar hún að einblína á lífsstílinn og lífsstílsbreytingar „því það er þessi tími á árinu. Ég er þegar búin að bóka yfir fimmtán fyrirlestra hjá fyrirtækjum í næstu og þarnæstu viku. Í síðustu viku bauð ég fyrstu fyrirtækjunum sem höfðu samband við mig upp á einn frían fyrirlestur. Það kemur til greina að bjóða upp á fleiri ef tími gefst til.

Markmið mitt í lífinu er að hjálpa fólki að taka meiri ábyrgð á eigin heilsu og hamingju og er því tilgangur minn með fyrirlestrunum að vekja fólk til umhugsunar hvernig það geti bætt líf sitt og látið drauma sína rætast. Mörg fyrirtæki hér heim gera sér grein fyrir því að afkastageta starfsfólks og starfsandi á vinnustöðum fer eftir vellíða starfsfólksins og því er mikill áhuga á þessum fyrirlestrum mínum. Einnig fæ ég tækifæri að ná til stærri markhóps í gegnum fyrirtæki og get ég því látið gott af mér leiða,“ segir hún.

Helga ætlar að bjóða almenningi upp á námskeiðið, Áramótaheitin og hvernig á að standa við þau, í World Class Laugum. „Ég er mikið að vinna með hugann og mátt hans, kenna fólki að skilja undirmeðvitundina og hvernig á að prógrammera hana upp á nýtt. Ég bjó til þetta námskeið fyrir fólk sem vill komast inn í nýjan lífsstíl og viðhalda honum út lífið, sem vill vinna með hugann svo að það þurfi ekki að byrja frá grunni aftur og aftur.“

Breyta hugmyndum

Námskeiðið hefst fimmtudaginn 2. febrúar og er tvö skipti 2. og 7. febrúar. Í fyrra skiptið fer Helga Marín yfir það af hverju tilraunin til að breyta um lífsstíl mistekst alltaf og hvað það er sem stendur í vegi fyrir fólki. „Þó ég kenni líka næringarfræði þá er mitt sérsvið að vinna með hugann og hjálpa fólki að hafa rétt hugarfar til að komast inn í réttan lífsstíl. Mitt verk er að breyta hugmyndum fólks um nýja lífsstílinn þannig að fólki finnist það ekki leiðinlegt, erfitt eða vont heldur að því takist að prógrammera heilann þannig að okkur líði vel í nýja lífsstílnum. Við förum í gegnum ýmis hjálpartæki sem ég hef þróað í fimmtán ár,“ útskýrir hún.

Helga Marín hefur líka önnur námskeið á prjónunum. „Endapunkturinn er að kenna fólki að taka ábyrgð á sinni heilsu og hamingju og vita að allt sé hægt ef hugarástandið er rétt. Við komumst hvert sem er, okkur standa allar leiðir opnar ef við höfum bara rétt hugarfar,“ segir hún.

Ritstjórn
23.5.2012

10 ráð til að verða hamingjusamara foreldri

fam forsida

Það er ýmislegt á foreldra lagt. Stundum eigum við það til að gera of mikið úr hlutunum. Hér eru tíu atriði sem geta hjálpað okkur að verða hamingjusamara foreldri….sem þýðir líka að börnunum okkar mun líða betur!   Þú getur ekki haft stjórn á ÖLLU. Það er stundum í lagi að viðurkenna að þú getur [...]

Nafnlaust
23.5.2012

Játning: Taggalicius ást

jatning

Ég var í sambandi í fjögur ár og þar á undan var ég búin að deita mestu skíthæla landsins að mínu mati. Þeir notuðu mig og komu illa fram við mig en það var þegar ég var yngri. Ég hélt þetta myndi ekki koma fyrir aftur enda yfir 25 ára. Ég var í mjög traustu [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Uppfærðu Angry Birds

angrybirdsforsida

Það hafa flestir spilað leikinn sem en fæstir láta sig dreyma um að falla niður með þessum reiðu fuglum eða þjóta á meðal þeirra í hringekjum. Nú hafa leikjahönnuðir Angry Birds hinsvegar uppfært leikinn og fært hann inn í raunveruleikann með tilkomu skemmtigarðar sem er að sjálfsögðu tileinkaður fuglunum og óvinum þeirra. Skemmtigarðinn er að [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Mansal er algengara en við höldum: Óhugnanlegir þættir frá BBC

mansal forsida

Við höfum einstakan hæfileika til að loka augunum fyrir því hræðilega sem á sér stað á degi hverjum í heiminum. Mansal er eitt af þeim atriðum. Við lesum um mansal í bókum og dagblöðum, sjáum heimildarmyndir og vitum að það tíðkast um heim allan en það er erfitt að setja sig í spor þessa heims [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Eurovision: 1500 sinnum #12stig á Twitter

tvit

„Tíst Íslendinga voru fyndnari en breski þulurinn,“Gísli Marteinn, lögreglustjórinn í Reykjavík og forstjóri CCP meðal þeirra sem lögðu orð í belg. Mjög líflegar umræður sköpuðust um söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöða á vefsíðunni Twitter.com í kvöld. Bæði í Evrópu allri en íslenskir notendur vefsíðunnar hafa líklega aldrei verið jafn virkir í umræðunum um Eurovision.  1500 íslensk tíst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ísland kemst áfram í Eurovision!

gretajonsi

Þau Gréta Salóme og Jónsi voru stórkostleg á sviðinu og ef marka má kosningarnar heilluðu þau ekki bara landann heldur einnig Evrópu en framlag okkar Íslendinga mun keppa í aðalkeppninni næstkomandi laugardag. Gréta og Jónsi voru númer tvö á sviðið og var atriðið þeirra svo sannarlega vel útfært. Blái liturinn á sviðinu fór laginu einstaklega [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]