Hinsegin kórinn heldur sína fyrstu opinberlegu tónleika í dag, 7. janúar. Tónleikarnir nefnast „Þrettándatónleikar Hinsegin kórsins“ og hefjast kl. 16 í Norræna húsinu.
Stjórnandi kórsins er Helga Margrét Marzellíusardóttir.
Kórinn var stofnaður síðsumars 2011 en hefur síðan þá komið fram við ýmis tilefni.
Hinsegin kórinn er kór hinsegin fólks, homma, lesbía, tvíkynhneigðra og transfólks en er þó að sjálfsögðu öllum opinn sem haldið geta lagi, óháð kynhneigð.

Staðsetning tónleikanna er afar viðeigandi þar sem allur ágóði af miðasölu rennur í ferðasjóð kórsins en sumarið 2012 mun kórinn syngja á Gay Pride í Færeyjum, fyrstu Hinsegin dögum Færeyinga frá árinu 2007.
Efnisskrá tónleikanna er afar fjölbreytt, allt frá klassískum kórverkum upp í nýrri dægurlög og hver veit nema nokkur jólalög fljóti með.
Miðasala fer fram í anddyri Norræna hússins fyrir upphaf tónleika og er almennt miðaverð 2.000 kr.
Frítt er fyrir börn að 12 ára aldri og ungmenni á aldrinum 12-18 ára fá miðann á hálfvirði.
Allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta.




















