Undanfarna daga hefur fólk verið að deila myndbandi sem hefur komist i fréttirnar, myndbandið sem er hægt að sjá HÉR. Myndbandiðer um strák sem segist hafa orðið fyrir einelti alla sína skólagöngu.
Allskonar fólk hefur verið duglegt að deila myndbandinu og lýsa yfir hryllingi sínum og stuðning. Ég fékk póst Í gegnum Facebook frá stráki sem sagði mér frá því að hann hafi orðið fyrir miklu einelti i grunnskóla vegna kynhneigðar sinnar. Hann er frá litlum bæ á íslandi og sagði mér að um tíma hafi enginn talað við hann. Hann sagði mér einnig að hann væri reiður vegna þess að margir þeirra sem höfðu lagt hann í einelti væru að deila eineltismyndbandinu. Það er líklegt að krakkarnir sem lögðu hann í einelti hafi einfaldlega þroskast og viti í dag hvaða afleiðingar einelti hefur haft. Ég veit allavega að ég var enginn engill í grunnskóla en átta mig algjörlega á því í dag hvað einelti getur haft vond áhrif á fólk.
Hinsvegar tók ég eftir því að margir af þeim sem deildu myndbandinu á Facebook hjá mér voru sömu aðilar og voru að kommenta á slúðurfréttir undanfarinna daga um einkamál þekktra einstaklinga á Íslandi – orð eins og „drusla, hóra, fáviti, ógeð“ ofl. voru látin flakka, frá fólki sem oftast hafði ekki hugmynd um alla málavexti og það sem verra er að þetta er líka frá fullorðnu fólki sem á að vera komið með þann þroska að taka ekki þátt í svona löguðu.
Við fullorðna fólkið höfum enga afsökun fyrir að níðast á öðrum eða leggja í einelti. Öfugt við litla krakka vitum við muninn á réttu og röngu og við vitum allt um það hverslags afleiðingar einelti og níðingsskapur getur haft á andlega heilsu fólks.
Ég var úti á lífinu með nokkrum vinum síðustu helgi, með í för var góður vinur minn sem er samkynhneigður. Ég tók eftir því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að nokkrir óprúttnir aðilar komu með leiðinlegar athugasemdir í tengslum við kynhneigð hans. Allir þeir aðilar sem létu einhvern sora út úr sér voru komnir vel yfir þrítugt og áttu að vita fullvel að svona hegðun er ekki til fyrirmyndar.
Eitt dæmi um athugasemd kom frá konu sem var á fertugsaldri: Við stóðum úti og vinur minn var að segja mér frá einhverju atviki. Konunni fannst hann víst standa og tala of kvenlega fyrir hennar smekk og tók sig til og lék hann, hún apaði upp eftir honum það sem hann var að segja mér og endaði svo á þvi að segja „ég er freeekar mikill hommi“ – smekklegt ? – Vil líka taka það fram að konan þekkti hann nákvæmlega ekki neitt. Þessi sami strákur varð fyrir miklu aðkasti eftir að hann kom út úr skápnum í litlum smábæ hér a Íslandi. „Töffararnir“ í bænum gerðu ýmsar tilraunir til að upphefja sjálfa sig á hans kostnað og kölluðu hann allskonar nöfnum. Þá voru þeir heldur ekki krakkar lengur heldur að nálgast tvítugt. Vinur minn var þó yngri en þeir, sem gerir þetta enn töffaralegra. Hann hinsvegar hefur blómstrað síðan hann flutti í bæinn enda alveg frábært strákur og það er einungis einstaka sinnum sem ég hef séð svona hluti gerast og þá eru það nánast undantekningarlaust rígfullorðnir „eilífðardjammarar“ sem eiga í hlut. Fólk sem oft hefur staðnað í þroska í kringum tvítugt og á fertugs- eða fimmtugsaldri er sótölvað niðrí bæ, biturt út í lífið og sér lítið annað í stöðunni en að segja nokkra „fyndna“ hommabrandara.
– Já vinur minn er samkynhneigður og hann er yndislegur eins og hann er. Það er spurning hvort konu þessari hefði fundist jafn fyndið að gera grín af þroskaheftum einstaklingi á þennan hátt? Eða manneskju með krabbamein?
Ég hélt virkilega að svona dæmi væru fátíð á Íslandi í dag. Kannski bara vegna þess að ég spái lítið sem ekkert í kynhneigð, litarhátt eða stöðu fólks. Fyrir mér er enginn æðri eða merkilegri en einhver annar og það hefur enginn rétt á því að koma illa fram við einhvern algerlega að ástæðulausu.
Það er miklu verra þegar við fullorðna fólkið leggjum í einelti vegna þess að við vitum nákvæmlega hvað við erum að gera. Hvort sem það er einelti á netinu eða í persónu þá er það alltaf skaðlegt. Ég ákvað að taka ekki þátt í fjölmiðlasirkúsnum sem hefur undirlagt Facebook og netið síðustu daga einfaldlega vegna þess að ég hef ekki hugmynd um alla málavexti og veit það að mér sjálfri fyndist það ekki gaman ef fólk sem þekkti mig ekki neitt væri kallandi mig druslu, hóru og hálfvita í gegnum netið.
Ég vona innilega að konan og hitt fólkið sem kom með leiðinlegar athugasemdir um elskulegan vin minn síðustu helgi lesi þennan pistil og hafi þann sóma að jafnvel biðjast afsökunar.




















