Rithöfundurinn Bandaríski Bethe Bennet, betur þekkt sem Bessie Mac, getur þakkað Schnauzer-num Danny fyrir lífsbjörgunina en Danny kom henni til bjargar þegar hún rann á flísum heima hjá sér og braut lærlegg.
„Ég lægi enn þarna, ég hefði legið þarna þar til einhver hefði komið. Ég hefði aldrei geta hreyft mig“ Segir Bessie en hún missti meðvitund rétt eftir fallið og vaknaði ekki fyrr en Danny hóf að sleikja hana í framan.
Bessie segist hafa verið hrædd og að hún hafi átt von á dauða sínum þegar Danny stökk til til og tók málin í sínar eigin loppur. Hundurinn ótrúlegi fann símann og færði eigenda sínum. Hann lét þar þó ekki við sitja heldur færði hann henni einnig fimm blöð. Það vildi svo skemmtilega til að á einu blaðana var símanúmer nágranna þeirra Bessie. Hún gat því hringt í neyðarlínuna og leiðbeint nágranna sínum að lykli sem falin var fyrir utan húsið.
Nú liggja þau og hvíla sig saman á spítala úti en Danny er velkomin þar eftir björgunina. Þeim heilsast báðum vel og hefur Bessie gefið það í skyn að hún muni skrifa um hetjudáðir litla hundsins.




















