Síðustu misseri hefur verið gífuleg umfjöllun um ljósabekkjanotkun og þann skaða sem þeir geta valdið fólki. Flest okkar þekkja vini, fjölskyldumeðlimi eða kunningja sem eiga við þetta vandamál að stríða og oftar en ekki sprettur upp umræða hversu hallærislega dökkir þessir einstaklingar eru, en „basic tískuslys” er þó eflaust það sem skiptir minnstu máli, oftar en ekki á þetta fólk við mikinn vanda að stríða sem það hefur ekki stjórn á.
Lengi vel var talað um sólbaðsfíkn eða Tanorexíu sem djók en ekki virkilegan sjúkdóm og þar með var ekki neina hjálp að hafa. Sannleikurinn er sá að fólk getur ánetjast sólbaðsfíkn á öllum aldri, allt frá unglingsárunum uppí eldra fólk sem er margt hvert hætt að vinna og hefur þar af leiðandi nægan tíma til að stunda ljósabekki.
En hvenær er maður farinn að stunda ljósabekki óhóflega ? Í grunninn má segja að í hvert skipti sem farið er í ljósabekki þá sé viss áhætta tekin, við þekkjum öll þegar sagt er að það þurfi ekki nema að hafa reykt eina sígarettu til að fá krabbamein. En höldum okkur nú við jörðina það fær varla nokkur maður sortuæxli við að fara einu sinni í ljósabekk, er það nokkuð ?
Sannleikurinn er sá að það er því miður ekki á nokkurn hátt hægt að staðhæfa um það, það sem er þó alveg á hreinu er að vitað er að útfjólubláir geislar auki líkur á sortuæxli svo um muni. Ljósabekkir gefa frá sér þessa útfjólubláu geisla og við státum að þeim vafasama heiðri að hér greinast flest sortuæxli eða sortuæxli á forstigi á norðulöndunum og ekki getum við því miður kennt sólinni okkar um það.
Í dag er það þannig að einstaklingar yngri en 18 ára eru óheimil afnot af sólarlömpum, í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum en það virðist þó að þessum lögum sé ekki framfylgt þrátt fyrir staðhæfingar margra eiganda sólbaðstofa og starfsmanna þeirra í fjölmiðlum.
Nýleg rannsókn sem ég lét framkvæma staðfesti þennan grun minn. Það fer ekki á milli mála að eigendur sólbaðstofa eiga hagsmuna að gæta og það er stórt skarð höggvið í þeirra rekstur að missa þessa viðskiptavini.

Ómar Raiss
Ég skil aftur á móti vel þau sjónarmið bæði ungmenna og þeirra sem eldri eru að vilja skella sér í ljósabekki, í dag má aftur á móti velja úr ótrúlegu úravali af bæði brúnkukremum, og brúnkuklútum þessi efni eru orðin allt önnur og betri en þau sem á markaðnum voru fyrir um 10 árum síðan, sjálfur hika ég ekki við að nýta mér þessar vörur því vissulega fer mörgum vel að vera með smá lit á kroppnum. Þessi krem og klútar ættu að duga flest öllum fullkomlega og það án þessu að setja heilsuna að veði. Svo er spray tan-ið alltaf að verða vinsælla.
Tökum ekki óþarfa áhættu með heilsuna.
Ómar Raiss




















