Hvar er karlmennskan?
11.01.2012 Aðsendar greinar

Við erum tvær vinkonur sem höfum verið að velta ýmsum hlutum fyrir okkur sem varða drengi nútímans. Ef það væri ekki fyrir internetið hefði maður aldrei verið kysstur þar sem flest samskipti nútímans fara fram á þeim vettvangi.

Í dag þýðir eitt „poke” eða jafnvel „add” að það sé eitthvað varið í þig. Maður er svosem ekki grunlaus og gerir sér nú alveg grein fyrir því að oft eru strákar í leit að one-night-stand. Eru íslenskir strákar svo miklir kettlingar að þeir þurfi að leita í gegnum Facebook að einhverju auðveldu?

Við höfum velt því fyrir okkur hversu margir landsmenn hafa mælt sér mót í gegnum app á Facebook? Hversu margir haldið þið að hafi grátið í koddann þegar hið fræga Compare Hotness app lagði upp laupana? Aðdáendur þurftu þó ekki að örvænta, því ekki leið á löngu þar til fleiri app í þessum dúr litu dagsins ljós.

Jæja, poke-in og öddin fóru að aukast aftur. Allt í lagi, fyrst að strákar kjósa að kynnast í gegnum þetta þá viljum við að strákurinn taki fyrsta skrefið og þegar við gefum tækifæri á okkur, þá á að grípa það! Þegar kemur að kveðjustund eftir fjögurra klukkustunda spjall á veraldarvefnum og maður svoleiðis situr útétinn með þurr augun af þreytu í von um að drengurinn hafi nú mannað sig upp í það að bjóða þér á ísrúnt eða jafnvel súrt spólutjill.

Hver er ástæðan fyrir því að strákur eyðir heilu kvöldi í að tala við þig á Facebook, dag eftir dag, í stað þess að bjóða þér í hitting?

Er það vegna þess að honum leiðist, hann þorir ekki eða er hann að spila sama leik og við?

Hvernig veit maður líka í gengum facebook hvort að strákurinn líti á þig sem ísetjanlega hlut eða girlfriend material?

Maður þarf nú ekki að horfa lengra en til DVD safnsins eða næstu ástarbókar þar sem kemur nánast undantekningarlaust fram að strákurinn á að taka fyrsta skrefið. Eða hefur þessi hefð snúist algjörlega við?

„Já, krakkar mínir ég skal sko segja ykkur söguna frá því þegar ég og pabbi þinn kynntumst. Hann flirt-aði mig og spank-aði á Taggalicious. Þá vissi ég sko að hann væri hin eini sanni”

Eftir rannsóknavinnu síðustu vikna, stöndum við uppi sem eitt stórt spurningarmerki og vörpum því spurningunni yfir til ykkar kæru lesendur.

Með von um skjót svör,
Tvær úr Tungunum

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Uppfærðu Angry Birds

angrybirdsforsida

Það hafa flestir spilað leikinn sem en fæstir láta sig dreyma um að falla niður með þessum reiðu fuglum eða þjóta á meðal þeirra í hringekjum. Nú hafa leikjahönnuðir Angry Birds hinsvegar uppfært leikinn og fært hann inn í raunveruleikann með tilkomu skemmtigarðar sem er að sjálfsögðu tileinkaður fuglunum og óvinum þeirra. Skemmtigarðinn er að [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Mansal er algengara en við höldum: Óhugnanlegir þættir frá BBC

mansal forsida

Við höfum einstakan hæfileika til að loka augunum fyrir því hræðilega sem á sér stað á degi hverjum í heiminum. Mansal er eitt af þeim atriðum. Við lesum um mansal í bókum og dagblöðum, sjáum heimildarmyndir og vitum að það tíðkast um heim allan en það er erfitt að setja sig í spor þessa heims [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Eurovision: 1500 sinnum #12stig á Twitter

tvit

„Tíst Íslendinga voru fyndnari en breski þulurinn,“Gísli Marteinn, lögreglustjórinn í Reykjavík og forstjóri CCP meðal þeirra sem lögðu orð í belg. Mjög líflegar umræður sköpuðust um söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöða á vefsíðunni Twitter.com í kvöld. Bæði í Evrópu allri en íslenskir notendur vefsíðunnar hafa líklega aldrei verið jafn virkir í umræðunum um Eurovision.  1500 íslensk tíst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ísland kemst áfram í Eurovision!

gretajonsi

Þau Gréta Salóme og Jónsi voru stórkostleg á sviðinu og ef marka má kosningarnar heilluðu þau ekki bara landann heldur einnig Evrópu en framlag okkar Íslendinga mun keppa í aðalkeppninni næstkomandi laugardag. Gréta og Jónsi voru númer tvö á sviðið og var atriðið þeirra svo sannarlega vel útfært. Blái liturinn á sviðinu fór laginu einstaklega [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]