„Hann fer í ljós þrisvar í viku…og mætir reglulega í líkamsrækt. Hann fer í Hollywood um helgar, með mynd af bílnum í vasanum.“Hver man ekki eftir þessu lagi?
Og hver er þessi Auðbjörn? Sem fer í ljós 3 í viku og mætir reglulega í líkamsrækt?
Það væri gaman að segja ykkur söguna af því hvar og hvenær ég heyrði þetta lag fyrst, hvernig þetta allt barst til tals og hver sagði mér upphaflega frá þessu.
En til að gera langa sögu stutta, þá er þetta lag einmitt samið um pabba minn.
Ég heyrði umræður í útvarpinu um daginn – þar sem verið var að velta því fyrir sér hvort þessi Auðbjörn væri ekki bara orðinn eldgamall og feitur í dag.
Ég gat ekki annað en skellt uppúr.. Kannski gamall jú. Reyndar ekki nema 50 ára. Aldrei deginum eldri en (í mesta lagi) 25 samt! Og ekki feitur fyrir fimmaur!
Það eru semsagt orðin ein 30 ár síðan þetta lag var samið.
Og það væri hvergi hægt að finna neinn sem stæði betur undir því en einmitt hann.
Hann hefur reyndar aldrei viljað tala hátt um þetta. En þar sem hann á ekki facebook og kann ekkert nema að kíkja á bílasölur á netinu…. Að því sögðu læt ég þetta flakka!
-Kristín Auðbjörnsdóttir




















