Inflúensan nær hámarki í lok febrúar
07.02.2012 Ritstjórn

Inflúensan er farin að ganga hér á landi en nær samt ekki hámarki fyrr en undir lok febrúar. Kvefpestirnar eru hinsvegar á fullu og meira um að fullorðnir, börn og unglingar leggist í rúmið af þeim sökum en vegna flensunnar.

Landlæknisembættið vaktar inflúensuna náið. Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnasviði, segir að inflúensan H3 hegði sér svipað og í fyrra. Hún hafi verið vaxandi hingað til og búast megi við að hún nái hámarki upp úr miðjum eða í lok febrúar. Þá er talsvert um að kvefpestir gangi.

Munurinn á kvefpestur og inflúensu er sá að inflúensan kemur snögglega með háan hita, hósta, höfuðverk og beinverki. Kvefið læðist hinsvegar að og byrjar sem væg hálsbólga, svo kemur hósti og nefrennsli en sá kvefaði fær ekki endilega háan hita þó að sú þumalfingursregla sé ekki algild.

„Þetta er tími kvefpestanna þannig að það er ekkert skrítið þó að fólk sé veikt núna,“ segir hún og bætir við að kvefið geti verið erfitt, stundum standi það í heila viku. Til að forðast að smita aðra sé gott að hnerra í tissjú eða í olnbogabótina, þvo sér vel um hendurnar og spritta hendurnar.

Guðrún mælir með því að fólk meti sjálft hvort það treystir sér í vinnu eða skóla ef það er kvefað en ef það er með inflúensu þá mælir hún með því að hvíla sig, liggja í rúminu og fara vel með sig þó að stundum geti líka verið of mikið af því góða. Þeir sem eru kvefaðir ættu hinsvegar að sleppa ræktinni og fara varlega. „Það þarf að bera virðingu fyrir kvefpestunum,“ segir hún og mælir með því að fólk finni út sjálft hvað því finnst hæfilegt með rúmlegu og heimavist. „Maður finnur best sjálfur hvað er hæfilegt í því efni,“ segir hún.

Landlæknisembættið fær greiningar á inflúensunni frá heilsugæslulæknum og bráðamóttökum og hefur því alltaf nýjustu og bestu upplýsingarnar um stöðuna. Þetta gerist í nýlegu vöktunarkerfið sem embættið hefur verið að þróa í nokkur ár. Fljótlega er svo meiningin að koma í gang vöktun á öðrum pestum sem ganga þannig að embættið hafi alltaf nýjustu upplýsingar um þær líka.

Nánari upplýsingar má finna hérog þróunina á inflúensufaraldrinum í Evrópu má sjá hér.

Ritstjórn
18.5.2012

Karen og María senda Gosling afmæliskveðjur!

gosling

Karen og María bjuggu til afmæliskveðju í myndbandsformi handa Erni Jónssyni sem er betur þekktur sem Gosling! Hann er 15 ára í dag og óska þær honum INNILEGA til hamingju! (…og við líka…)  

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]