Sigga Clausen skrifar:
Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að fara í bíó en það getur stundum orðið hin leiðinlegasta athöfn. Þá er ég nú ekki að meina þegar myndin valdi vonbrigðum eða þegar verður uppselt heldur er ég að tala um dónaskapinn í fólki. Íslendingar kunna hreinlega ekki að bera virðingu fyrir öðrum í bíósal.
Helstu óskráðar og skráðar meginreglur kvikmyndahúsa eru:
*Ekki tala í síma meðan á kvikmynd stendur
* Sms er bannað, glampinn truflar (líka þegar kíkt er á klukkuna)
* Að tala alla kvikmyndina er óþolandi og er vanvirðing við aðra borgandi bíógesti
*Spark í sæti getur valdið óþægindum og jafnvel sársauka hjá bakveikum (hef persónulega orðið vitni að því að kona fór að gráta út af þessu)
Svo er það hegðunin í sjoppunni. Íslendingar eiga erfitt með að standa í einfaldri röð. Það er ekki að ástæðulausu að flest kvikmyndahús eru búin að stilla upp böndum svo fólk geti ekki ruðst fram fyrir aðra. Það er því miður ekki hægt alls staðar og þar mætti halda að fólk nyti þess að fá að ryðjast. Þetta er því miður líka oft í klósettröðunum í hléum.
Þetta eru bara svona helstu þumalfingursreglur í bíóum sem því miður fáir virðast hlýða. Ég fer oft í bíó en ég man ekki eftir því hvenær ég fór í bíó og myndin var ekki trufluð af því fólk var að senda sms, kíkja oft á klukkuna í símanum eða svara símanum bara til að segja: ,,Ég get ekki talað, ég er í bíó“. Hvernig væri bara að slökkva á símanum og svara öllum ósvöruðum sms-um og símtölum EFTIR myndina?
Það er ekki furða að bíóaðsókn hafi minnkað og fólk bíði frekar eftir að myndin komi á dvd og horfi heima. Persónulega ætla ég að byrja á því og keypti mér því bara heimabíó, poppvél og svo er gos í dós eða gleri hvort sem er miklu betra en úr vél. Þó þetta henti ekki fyrir allar myndir þar sem biðin er óbærileg þá gæti þetta hjálpað við að losna undan ókurteisum íslendingum.
_______________________________________
Vilt þú koma einhverju á framfæri. Endilega sendu okkur póst á bleikt@bleikt.is




















