Íslenskur læknir bjargaði sjón þriggja ára drengs með aðstoð Facebook
04.02.2012 Ritstjórn

Íslenskur læknir bjargaði sjón þriggja ára sænsks drengs eftir að hafa séð mynd af honum skaðbrenndum í framan á Facebook.

Martin, 3ja ára, fékk slæman bruna í andlitið og stokkbólgið auga eftir að hafa ákveðið að bjarga sér sjálfur um heitt O‘boy kakó. Hann setti bollann inn í örbylgjuofninn þegar enginn sá til heima hjá sér og kveikti á ofninum. Síðan lét ofninn vita að hann væri búinn og áður en nokkur náði að bregðast við var Martin búinn að taka bollann út úr ofninum. Hann hellti í leiðinni heitu kakóinu yfir sig.

Á aðeins nokkrum sekúndum var augað orðið stökkbólgið og andlitið blóðrautt. Aftonbladet hefur eftir móður Martins, Åsa Lagerstam, að þau foreldrarnir hafi skolað Martin upp úr köldu vatni og flýtt sér svo með hann á heilsugæslustöðina í Laholm í Svíþjóð en þar var hann bara sendur heim skaðbrenndur. Læknirinn reyndi að opna augað en tókst ekki að deyfa það og bað þau því að koma bara aftur næsta dag .

Um kvöldið vall gröfturinn út úr auganu. Fjölskyldan reyndi að fá neyðaraðstoð í Halmstad en voru send heim. Daginn eftir fóru þau aftur á heilsugæslustöðina í Laholm. Andlit Martins var þá orðið illa farið af bruna og bólgu en læknirinn sagði bara að þetta myndi jafna sig. Eina ráðið væri að „fara heim og láta martröðina halda áfram,“ segir í frétt Aftonbladet.

aftonbladet

Skjáskot: Aftonbladet.se

Um kvöldið setti Åsa, móðir Martins, mynd af honum á Facebook til að systir hans gæti séð áverkana. Tveimur mínútum síðar hrindi læknir á Íslandi. Åsa hafði spjallað áður við eiginkonu læknisins því að hundahald er sameiginlegt áhugamál þeirra. Læknirinn Flosi Karlsson er vanur að fást við brunaáverka og hann hvatti fjölskylduna til að fara þegar í stað til sérfræðings.

„Mér skildist að það væri hætta á sýkingu, jafnvel heilahimnubólgu,“ segir Åsa við Aftonbladet. Hún fór beinustu leið á neyðarmóttökuna í Halmstad og krafðist þess að fá læknisaðstoð. Sömu nótt var sonur hennar sendur á brunavaktina í Linköping. Þar kom í ljós að þriðjungur af hornhimnunni í auganu hafði orðið illa úti og Martin fékk að sjálfsögðu alla þá aðstoð sem hann þurfti. Talið er að sjóninni hafi verið bjargað en það skýrist betur eftir hálft ár.

Heilsugæslustöðin í Laholm hefur verið kærð til heilbrigðisyfirvalda í Svíþjóð.

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Stelpurnar í Júník voru að fá SJÚKLEGAR buxur!

budin buxur

Júník í Smáralind: Voru að fá buxur aftur sem ruku út á sínum tíma. Eftir langa bið eru þær komnar aftur og eru algerlega að slá í gegn! Þær eru með þvílíkt úrval af glænýjum vörum og er búðin ein sú heitasta í bænum í dag! BUXURNAR! BÚÐIN!