Ég er ung stúlka úr Breiðholtinu og ég þoli ekki þennan stimpil sem Breiðholtið hefur: Villingahverfi! Dópistar! Áfengissjúklingar!
Ég veit að auðvitað eru dópistar hér, alveg eins og í Vesturbænum, Grafarvoginum og á Egilstöðum.
Sem dæmi má taka þegar ég kynni mig og segist vera úr Breiðholti fæ ég alltaf einhver skot t.d.: „ Ahh, já það útskýrir af hverju þú ert svona klikkuð…“ og svo framvegis.
Þetta er orðið svo þreytt .
Breiðholt er frábært hverfi og að kalla það villingahverfi er bara lélegt. Mér þykir mjög vænt um hverfið mitt og hata þessssi skot og hint.
Ég meina: Þú getur hugsað um hverfið þitt og þá finnurðu alltaf einhverndópista eða manneskju í rugli.
Við búum ekki í Paradís.
Vil bara benda á að þetta er rangt og gerir engan glaðan.




















