Hæ, ég er 16 ára stelpa og ég er alltaf með stöðuga minnimáttarkennd. Af því að í hvert skipti sem ég sé aðrar stelpur í svo flottum og dýrum fötum þá verð ég alveg miður mín!
Það eina sem ég hugsa er: „Ég vildi ég ætti pening!“ Ég er var í fastri vinnu í sumar en það gekk bara alls ekki nógu vel að spara þann pening sem ég fékk þaðan. Ég fékk þá hugmynd fyrir stuttu, þegar þessi ágirnd var í hámarki, að búa til lista yfir allt sem mig langaði að eignast.
Á listanum eru samtals 31 hlutur, án þessara 7 hluta sem búið er að kaupa.
Ég reiknaði sirka kostnaðinn sem allt þetta myndi kosta samtals. Útkoman var ekki sú besta; samtals 369,800 krónur! Og sem unglingsstelpa, sem er að byrja í menntaskóla og býr í sveit, er erfitt að nálgast mikla vinnu án þess að eyða tugum þúsunda í bensín. Auðvitað er ég svo ekki með bílpróf og á foreldra sem vinna 24/7 og hafa því ekki nægan tíma til að vera að skutla mér eitthvert!
Markmið mitt er að ná að klára þennan bannsetta lista áður en ég útskrifast úr menntaskóla, sem er nokkuð gott markmið … nema það að mig langar að eignast þessa hluti núna en ekki eftir 4 ár!
Ef einhver hefur einhver ráð fyrir kaupfíkil eins og mig sem gætu hjálpað mér að spara pening og í leiðinni ná markmiði mínu fyrir áætlaðan tíma, ekki hika við að koma með tillögur og senda svarbréf á vefinn!
Kveðja, Blankur Kaupfíkill
Ert þú í sambærilegum sporum? Kaupfíkn er raunverulegur vandi sem hrjáir marga, en HÉR og HÉR má m.a. finna ágætar greinar um kaup- og skuldafíkn á íslensku.




















