Ég lenti í hræðilegu atviki þegar ég var ung og ætla að segja sögu mína hér.
Eitt kvöld þegar ég var mjög ung, var alltaf X að biðja mig um að hitta sig og hann hætti ekki. X hringdi í mig, sendi mér sms, sendi mér skilaboð á facebook og allt bara. Svo um kvöldið sagði ég bara já við X, því ég nennti þessu ekki lengur.
X sagði mér að ég ætti að koma til hans og vinur minn skutlaði mér til hans. Þegar ég labbaði úr bílnum sá ég íbúð og bankaði bara uppá, svo kom X til dyra (myndarlegur og flottur strákur) og svo sá ég að íbúðin hans var full af vinum og vinkonum hans.
X bauð mér vingjarnlega inn og svo spjallaði ég við nokkra vini hans, svo allti einu dró X mig inn í lítið herbergi og læsti svo hurðinni. Ég bara vissi ekki hvað ég væri komin út í og þá sérstaklega þegar hann læsti hurðinni, svo lagðist X uppi rúmið sitt og X bað mig um að koma og leggjast.
Svo alltieinu byrjaði X að rífa mig úr fötunum og gera kynferðislegahluti við mig sem mér fannst mjög óþægilegt og ég man hvað oft ég bað X um að hætta en hann hætti ekkert, gerði bara meira og meira. X neyddi mig að gera kynferðislegahluti við sig og svo gekk hann alla leið.
Ég man hversu fast X hélt í hendurnar mínar svo ég gat ekki hreyft mig neitt á meðan….ég fraus og trúði ekki að þetta væri að gerast – ég var dofin tilfinningalega og gat ekki hreyft mig þar sem hann var helmingi eldri en ég og meira en helmingi sterkari líka.
Svo hálftíma seinna hringdi vinur minn í mig og spurði hvort að það væri allti lagi og þá sleppti X mér loksins, þá var X brjálaður og sagði mér að drulla mér út.
Ég bara get ekki lýst sársaukanum sem fylgir svona hræðilegu ofbeldi, eftir 2 daga sagði ég þeim sem var erfiðasta sem ég hef gert og ég fór uppá spítala sem var hræðilega erfitt. Svo kærðu foreldrar mínir X, og ég fór í margar yfirheyrslur sem var erfiðasta í þessu öllu saman því maður þarf að segja hvert einasta smáatriði sem X gerði gegn mér.
Eftir allar þessar yfirheyrslur fékk hann ákveðinn dóm, ég var svo ánægð að vera laus við hann í nokkur ár og vera ekki hrædd um að hann geri svona aftur við mig í bili.
Eftir þetta sagði ég aldrei neinum hvernig mér leið,mér fannst ég ótrúlega skítug líkamlega, það vissi engum hvernig mér leið, ég lét þetta bitna á öllu öðru og fékk reiðisköst og mér fannst ég bara svo EIN. Ég var rosalega niðurbrotin, ónýt andlega, vildi auðvitað ekki sætta mig við þetta, og mér fannst þetta bara svo óraunverulegt. Svo fór ég til sálfræðings í Barnahúsiog það hjálpaði mér mjög mikið í gegnum þetta.
Ég mun aldrei í lífinu gleyma þessu og serstaklega hvað X gerði og þeir sem hafa ekki lent í þessu geta ekki ímyndað sér hvernig þetta er og hversu mikil áhrif þetta hefur á mann.
En í dag er ég miklu sterkari en ég ímyndaði mér að ég gæti nokkuðtímann orðið eftir þetta og ég á frábæra fjölskyldu og vini sem styðja í bakið á mér. Þetta voru bara stór mistök að hitta hann en aftur á móti lærði ég svo mikið af þessu og þetta var mikil lífsreynsla.
Ég vildi deila þessu með ykkur því það er mikið af fólki sem telur misnoktun eitthvað bull, en nauðgun er grafalvarlegt mál og ég vildi líka sérstaklega deila þessu hérna því það eru svo margir stelpur sem lenda í þessu og halda að þær séu bara einar í þessu öllusaman og þær eru ALLS EKKI einar í þessu!
Í dag er ég 18 ára og eftir mína reynslu eftir kynferðislegt ofbeldi hef ég þroskast svo mikið, lært fáránlega mikið á þessu og í dag er ég mikið sterkari andlega.
What doesn’t kill you, only makes you stronger!




















