Hann er þjálfarinn minn og er ekkert mikið eldri en ég. Hann er single, á besta aldri, ótrúlega sexý og sætur strákur. Þegar ég er æfingu þá gleymi ég mér og fer að hugsa um hann nakinn. Hann er svo flottur og ég skil ekki af hverju hann er enn single!!!
Djö…ég elska hann! Þá meina ég virkilega að ég elski hann.Hann er yndislegur í alla staði, frábær með börn og vel stæður í vinnuni sinni. Hann á frábæra fjölskyldu sem ég þekki vel reyndar en hann er svo feiminn og ég held hann sé hræddur við stelpur.
Ég er nú ekki í jafn góðu formi eins og hannen commón, bara að sjá hann sýna okkur armbeyjurnar og bolurinn hans lyftist, maður getur séð magavöðvana….vá hvað mig langar í hann!
Get ekki að því gert að stundum er ég farin að ímynda mér lífið okkar saman, framtíðina. Hvar hann getur sett sófann sinn inn í íbúðinni minni eða ég sjónvarpið mitt í hans íbúð? Hvað er að mér? Hann lítur bara á mig sem eina af stelpunum sem hann er að þjálfa.
Ég er bara gunga sem þorir ekki að segja honum hvernig mér líður er alltof hrædd við afleiðingarnar þar sem ég er ekki hans týpa, held ég…..en hver er hans týpa svosem: Hann er aldrei með stelpum og hann er ekki samkyneigður!
Hvað á ég að gera…..Ég er ekki nógu örugg með sjálfa mig og veit að hann er það ekki heldur en kommon! Hann er svo sjúklega heitur!
Hugsa um hann kynferðislega og myndi 110 % vilja eiga framtíðina með honum.
En bíðið aðeins… Kannski er betra að byrja á byrjuninni. Ég er búin að vera í sambandi í 4 ár og á lítinn 3 ára prins.
Ég er ekki bofs ástfangin af kærastanum mínum og hann er alltaf að vinna og við hittumst sjaldan, en þykir endalaust vænt um hann. Er í ástarsambandi en ástfangin af öðrum! Erum alltaf sundur-saman en mér finnst enginn annar vilja mig svo við endum saman en erum ekkert ástfangin.
Veit vel að ég ætti að enda samband sem ég er ekki ánægð í….en ég vil bara eitthvað sem ég get ekki fengið, eða hvað ?
Kveðja, kjáninn




















