Ég er 16 ára stelpa að klára grunnskólann. Skólinn er kannski ekki uppáhaldsstaðurinn minn; krakkarnir geta verið illkvittnir og námið getur verið leiðinlegt en ég skil ekki af hverju krakkar hata kennara svona mikið.
Kennararnir reyna og reyna að hjálpa ykkur, kenna ykkur námsefnið og svoleiðis.
Auðvitað geta þau verið leiðinleg og öskrað á ykkur efþið eruð ekki að hlusta.
Kennarar eiga sína slæmu daga alveg eins og við unglingarnir en það þýðir ekki að þið þurfið að vera svona fjandi vond við þau.
Orð geta alveg eins sært fullorðna fólkið eins og okkur hin!
Gerið það krakkar, berið virðingu fyrir kennurum ykkar.
Þið vitið ekki hversu mikil áhrif þau geta haft á framtíð ykkar.




















