Játning: Hættum saman og hann kominn með nýja 2 vikum seinna
13.12.2011 Nafnlaust

Ég er 14 ára stelpa. Er í skóla og æfi mikið. Það var þessi strákur sem ég var rosalega hrifin af, köllum hann bara Jón.

Jón var einu ári eldri í sama skóla og ég. Mér fannst ekkert að því að hann væri eldri, við fórum að tala helling saman og vorum byrjuð að hittast. Hann var rosa góður við mig svo bara hætti hann að tala við mig í skólanum, en sendi mér alltaf sms og talaði við mig á facebook eða þegar við vorum bara tvö ein.

Ég fór heim til hans eit kvöld og við kysstumst og það var rosa gaman og þetta hélt svona áfram í mánuð. Ég svaf hjá honum og eftir það fór hann bara að hunsa mig og vildi ekki tala við mig.

Ég spurði hann hvort hann væri bara að nota mig til að sofa hjá eða hvort þetta yrði einhvertíma eithvað meira, Jón svaraði: „Ég veit það ekki“ og ég varð rosa reið og hann var bara búinn að enda þetta.

Svo sendi hann mér rosa krúttlegt sms um að hann saknaði mín og hann vildi að við myndum láta þetta ganga, ég sagði að ég væri alveg til í það.

Ég fór ekki til Jóns í smá tima á meðan ég var að átta mig á þessu öllu. Við fórum að hittast aftur og allt gékk vel, við sváfum aftur saman.

Hann kom til mín og við kysstumst og mér leið svo vel, en síðan var ball, og ég fór með vinkonum minu og hann með vinum sinum, og hann hunsaði mig allt ballið.

Daginn eftir sagði hann við mig að þetta væri bara búið. Ég grét úr mér augun. Núna talar hann við mig eins og ekkert hafi gerst og við séum bara geggjað góðir vinir, en mér finnst það svo erfitt og langar bara að fara að gráta þegar ég sé hann.

Jón er að halda áfram og er kominn með aðra stelpu og honum líður bara rosalege vel, og það eru bara 2 vikur siðan þetta endaði hjá okkur.

Mig langar rosalega að segja við hann að ég vilji ekki að hann tali við mig en veit ekki hvernig ég á að segja það.

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah  

Ritstjórn
21.5.2012

Hvar verður barnið þitt í sumar? Námskeið fyrir bráðger börn

genius

Ad Astra er lítið fyrirtæki sem hefur áhuga á að efla menntun á Íslandi. Þau leggja sig fram við að koma til móts við bráðger og námsfús börn. Frá árinu 2007 hafa verið haldin námskeið fyrir þessi börn en þá á vorin og haustin. Núna eru þau að fara af stað með nýtt og spennandi [...]

Ritstjórn
21.5.2012

28 ára maður lét lífið undir lyftingalóðum

lyftingalod

Chris Bailey fannst látinn í bílskúrnum heima hjá sér eftir að hafa lyft of þungum lóðum einn síns liðs. Bailey hafði keypt bekkinn fyrir nokkrum vikum til að spara pening og þurfa ekki að kaupa sér kort í líkamsræktarsal.     Daily Mail greinir frá því að síðast hafi sést til Bailey á leið inn [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Magnaður brúðkaupsdans: Myndband

brudkaupsdans

Bíddu eftir því….! Æðislegt  

Ritstjórn
21.5.2012

Anchorman 2 á leiðinni: Myndband

ancorman

Á leiðinni er ný mynd með Will Ferrel þar sem hann fer væntanlega á kostum sem fréttamaðurinn Ron Burgundy. Snilld!  

Aðsendar greinar
21.5.2012

Við viljum að áfengisaldurinn verði lækkaður

afnegi

Neysla og sala á áfengi hefur verið leyfileg á Íslandi síðan á síðustu öld. Árið 1998 tóku í gildi ný áfengislög. Samkvæmt þeim er óheimilt að selja eða veita þeim áfengi sem ekki hefur náð 20 ára aldri. Við erum fjórar stelpur á fyrsta ári í framhaldsskóla og við viljum að þessi lög verði endurskoðuð [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Kastað til bata: Jóhanna segir frá rúllettunni við krabbameinið

johanna krabbamein

Ég er ein af þessum konum sem ná fertugsaldri og fá heimsent bréf um að fara  í 40ára brjóstamyndatöku hjá Krabbameinsfélaginu. Grunlaus með öllu mæti ég niður í Skógarhlíð í myndatöku og fannst ég nú lítið hafa að gera þarna niðureftir. En stuttu seinna er hringt og ég beðin að koma í nánari skoðun þar [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Kjörís Beibís – Auglýsingar frá aðdáendum Kjöríss

kjorisforsida

Guðni Reynir Þorbjörnsson og Bjarki Þór Guðmundsson eru miklir aðdáendur Kjöríss, í raun eru þeir svo miklir aðdáendur að þeir hafa opnað Facebooksíðu tileinkaða ísnum og þar birta þeir nýja auglýsingu fyrir ísinn á hverjum fimmtudegi. Framtakið hefur fengið góð viðbrögð og vinirnir áræddu því að ganga enn lengra og sömdu nýjan texta við lagið [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Óheppileg staðsetning

stadsetn lil

…hvernig sem á það er litið!!  

Nafnlaust
21.5.2012

Játning: Hvað með dónalegt kassastarfsfólk?

waiting

Eftir að hafa lesið nokkrar játningar frá fyrrverandi (eða núverandi) kassastarfsfólki, um hversu ómögulegt fólk yfir höfuð er og hversu mikið dónaskapurinn fer með brostin hjörtu þeirra, þá gat ég nú ekki annað en komið með hinn pólinn á þetta… þ.e. kassastarfsfólk sem er með dónaskap. Dónaskapur þarf ekki að einskorðast við að orðum sé [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Djúsí svefn!

djusi lil

Væri maður ekki sísvangur í þessu rúmi?  

Ritstjórn
21.5.2012

Hvað sérðu á laufblaðinu?

camo lil

Sérðu það…?     Þessi lirfa verður í raun að fiðrildi. Náttúran er ótrúlega mögnuð!  

Ritstjórn
21.5.2012

Misheppnaðar brúðkaupsmyndir

giftingforsida

Nei hættu nú alveg… Þessar brúðkaupsmyndir eru hver annarri verri, hvað var fólkið að hugsa?                      

Ritstjórn
21.5.2012

Bláa lónið á Galapagoseyjum

galapagos lil

Ah, þeirra lítur svona út!  

Ritstjórn
21.5.2012

Kíkt á nígerísk brúðkaup: 400 gestir eru ekki neitt!

nig fors

Gestalistinn telur oft 2000 manns! Nígerísk brúðkaup eru að verða ein stærsta framleiðsla þessa afríkuríkis. Brúðkaupin eru litrík, hugmyndarík og mikið er um að vera. Yemi Osunkoya er brúðarkjólahönnuður og það er meira en nóg að gera hjá honum, samkvæmt CNN. „400 gestir í einu brúðkaupi telst ekki mikið. Því fleira fólk sem mætir, því [...]