Játning: Hann byrjaði með vinkonu minni
10.01.2012 Nafnlaust

Ég er 16 ára stelpa sem hitti alveg yndislegan strák. Hann var góður við mig og ég kolféll fyrir honum en ég vissi fyrirfram að þetta samband myndi aldrei ganga. Fyrir því voru tvær ástæður:

  1. Hann var ástfanginn af vinkonu minni sem er nítján ára og á föstu með vini hans.
  2. Hann er kominn yfir lögaldur

Þetta byrjaði þannig að hann kom heim til mín af því að þessi vinkona mín gisti hjá mér og vildi ræða við hana. Mömmu fannst það allt í lagi og hleypti honum inn. Meðan þau voru að tala saman var ég inni í stofu og ég hugsaði að X væri fallegasti drengur sem ég hafði séð. Þegar þau komu fram fórum við að spjalla og spjölluðum allt kvöldið. Hann fór heim og ég sá hann ekki aftur fyrr en við fórum í útilegu. Við vorum akkúrat á sama stað. Ég uppgötvaði ekki strax að þetta væri X og fannst svolítið skrýtið að einhver gaur væri að kalla á mig en svo vissi það ég strax þegar hann kom nær. Hann talaði við mig um vinkonu mína og sagði við mig að hann gæti ekki hætt að hugsa um hana. Þá ákvað ég að reyna að hjálpa honum að komast yfir hana en því meira ég var með honum því meira féll ég fyrir honum.

Eftir svona þrjár vikur addaði hann mér á Facebook og við töluðum þar saman á hverjum degi í 2-3 tíma. Það endaði á því að ég gat ekki hætt að hugsa um hann og fann til með honum því vinkona mín var að spila með hann – hún vissi að hann bar tilfinningar til hennar en hún notfærði sér það, spurði hann um peninga og fleira. Ég sagði honum það aldrei því ég var of hrædd um að hann myndi hætta að tla við mig þannig ég lét það kyrrt liggja.

Þegar sumrinu lauk hélt ég áfram að tala við hann en einn daginn sagði hann mér að hann og vinkona mín væru byrjuð saman. Ég náði ekki andanum, mér leið eins og heimurinn væri að hrynja og ég gat ekki einu sinni hreyft mig. Ég hringdi strax í hana og sagði henni sólarsöguna.

Hún sagði að ég ætti að reyna að gleyma honum því hann ætti mig ekki skilið. Ég gat ekkert sofið þetta kvöld, lá bara á rúminu mínu og grét og gat ekki hætt. Þetta var í fyrsta skipti sem ég grét vegna stráks. Í október kom X á Facebook og byrjaði að tala við mig og tilfinningin kom aftur en ég mundi að hann væri með vinkonu minni. Ég gat ekki gert henni þetta þó hún hafi gert þetta á minn hlut.

Ég lifi með þessu í dag og hef ekki litið á annan strák því ég sé engan annan en X.

Ég reyni að hætta að hugsa um hann en ég get það ekki.

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah  

Ritstjórn
21.5.2012

Hvar verður barnið þitt í sumar? Námskeið fyrir bráðger börn

genius

Ad Astra er lítið fyrirtæki sem hefur áhuga á að efla menntun á Íslandi. Þau leggja sig fram við að koma til móts við bráðger og námsfús börn. Frá árinu 2007 hafa verið haldin námskeið fyrir þessi börn en þá á vorin og haustin. Núna eru þau að fara af stað með nýtt og spennandi [...]

Ritstjórn
21.5.2012

28 ára maður lét lífið undir lyftingalóðum

lyftingalod

Chris Bailey fannst látinn í bílskúrnum heima hjá sér eftir að hafa lyft of þungum lóðum einn síns liðs. Bailey hafði keypt bekkinn fyrir nokkrum vikum til að spara pening og þurfa ekki að kaupa sér kort í líkamsræktarsal.     Daily Mail greinir frá því að síðast hafi sést til Bailey á leið inn [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Magnaður brúðkaupsdans: Myndband

brudkaupsdans

Bíddu eftir því….! Æðislegt  

Ritstjórn
21.5.2012

Anchorman 2 á leiðinni: Myndband

ancorman

Á leiðinni er ný mynd með Will Ferrel þar sem hann fer væntanlega á kostum sem fréttamaðurinn Ron Burgundy. Snilld!  

Aðsendar greinar
21.5.2012

Við viljum að áfengisaldurinn verði lækkaður

afnegi

Neysla og sala á áfengi hefur verið leyfileg á Íslandi síðan á síðustu öld. Árið 1998 tóku í gildi ný áfengislög. Samkvæmt þeim er óheimilt að selja eða veita þeim áfengi sem ekki hefur náð 20 ára aldri. Við erum fjórar stelpur á fyrsta ári í framhaldsskóla og við viljum að þessi lög verði endurskoðuð [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Kastað til bata: Jóhanna segir frá rúllettunni við krabbameinið

johanna krabbamein

Ég er ein af þessum konum sem ná fertugsaldri og fá heimsent bréf um að fara  í 40ára brjóstamyndatöku hjá Krabbameinsfélaginu. Grunlaus með öllu mæti ég niður í Skógarhlíð í myndatöku og fannst ég nú lítið hafa að gera þarna niðureftir. En stuttu seinna er hringt og ég beðin að koma í nánari skoðun þar [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Kjörís Beibís – Auglýsingar frá aðdáendum Kjöríss

kjorisforsida

Guðni Reynir Þorbjörnsson og Bjarki Þór Guðmundsson eru miklir aðdáendur Kjöríss, í raun eru þeir svo miklir aðdáendur að þeir hafa opnað Facebooksíðu tileinkaða ísnum og þar birta þeir nýja auglýsingu fyrir ísinn á hverjum fimmtudegi. Framtakið hefur fengið góð viðbrögð og vinirnir áræddu því að ganga enn lengra og sömdu nýjan texta við lagið [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Óheppileg staðsetning

stadsetn lil

…hvernig sem á það er litið!!  

Nafnlaust
21.5.2012

Játning: Hvað með dónalegt kassastarfsfólk?

waiting

Eftir að hafa lesið nokkrar játningar frá fyrrverandi (eða núverandi) kassastarfsfólki, um hversu ómögulegt fólk yfir höfuð er og hversu mikið dónaskapurinn fer með brostin hjörtu þeirra, þá gat ég nú ekki annað en komið með hinn pólinn á þetta… þ.e. kassastarfsfólk sem er með dónaskap. Dónaskapur þarf ekki að einskorðast við að orðum sé [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Djúsí svefn!

djusi lil

Væri maður ekki sísvangur í þessu rúmi?  

Ritstjórn
21.5.2012

Hvað sérðu á laufblaðinu?

camo lil

Sérðu það…?     Þessi lirfa verður í raun að fiðrildi. Náttúran er ótrúlega mögnuð!  

Ritstjórn
21.5.2012

Misheppnaðar brúðkaupsmyndir

giftingforsida

Nei hættu nú alveg… Þessar brúðkaupsmyndir eru hver annarri verri, hvað var fólkið að hugsa?                      

Ritstjórn
21.5.2012

Bláa lónið á Galapagoseyjum

galapagos lil

Ah, þeirra lítur svona út!  

Ritstjórn
21.5.2012

Kíkt á nígerísk brúðkaup: 400 gestir eru ekki neitt!

nig fors

Gestalistinn telur oft 2000 manns! Nígerísk brúðkaup eru að verða ein stærsta framleiðsla þessa afríkuríkis. Brúðkaupin eru litrík, hugmyndarík og mikið er um að vera. Yemi Osunkoya er brúðarkjólahönnuður og það er meira en nóg að gera hjá honum, samkvæmt CNN. „400 gestir í einu brúðkaupi telst ekki mikið. Því fleira fólk sem mætir, því [...]