Ég er ung stelpa af höfuðborgarsvæðinu.Ósköp venjuleg með nóg af vinum og góða fjölskyldu. Er í grunnskóla og þannig er mál með vexti að ég er búin að vera hrifinn af þessum strák í um það bil ár en því miður hefur það ekki gengið eins og í sögu.
Fyrir svona ári byrjaði ég að sjá eitthvað við hann. Andlitiðog persónuleikinn breyttist fyrir mér. Mér fannst hann allt í einu rosalega fullkominn eitthvað. Allt breyttist samt í skólaferðalagi þar sem að ég virkilega varð hrifin af honum. Töluðum mikið saman á spjalli á Facebook með kossaköllum og hjörtu og öðru og urðum mjög heit fyrir hvort öðru.
Aldrei gerðist samt neitt svona í alvöru nema saklaus comment hjá hvor öðru á myndir og statusa. Fyrir honum að minnstkosti. En í hvert skipti sem að ég sá nafnið hans í tilkynningunum öskraði ég næstum af gleði.
Svo allt í einu fór þetta allt minnkandi. Spjallið, comment og hann horfði varla á mig í skólanum. Ég var kvíðin fyrir sumarfrí því ég var viss um að allt þetta myndi þá algjörlega hætta. Svo kemur að skólaslitum og einsog ég vissi hættu öll samskipti. Ég að vísu reyndi að tala við hann en það komu bara eins orðs svör til baka án allra broskalla eða annars. Ég var alveg i rusli yfir þessu öllu en reyndi bara að hætta að hugsa um hann.
Svo alltí einu byrjar hann að tala við mig með tilheyrandi köllum aftur og ég náttúrlega hafði ekkert á móti því. Nema það að tveimur vikum seinna byrjar hann með annari stelpu og fór sjö sinnum í sleik við hana fyrir framan mig og vissi vel af því að ég var að horfa.
Þessi stelpa er bara fullkomin í alla staði og nú líður mér eins og aumingja að hafa trúað að hann væri hrifinn af mér og vildi eitthvað með mig hafa. Ég held að hluta til að ég hafi elskað hann..
Er ég alveg ein í þessu og alger auli eða kemur þetta líka fyrir aðra?




















