Það er nú þannig að ég á nokkrar bestu vinkonur sem ég geri allt með og gæti aldrei lifað án. Þær vita ALLT um mig, það er ekki neitt sem ég segi þeim ekki.
Ég er að ganga í gegnum marga hluti núna, mjög slæma hluti sem ég ætti að geta lagað sjálf en get ekki og enginn hefur getað hjálpað mér hingað til en vinkonur mínar þær hjálpa mér í gegnum þetta allt og styðja mig og tala við mig til að reyna að hjálpa mér og ég gæti ekki verið meira þakklát.
Þegar ég er með þeim finnst mér ég geta gert allt sem ég vil og sagt allt sem ég vil, og ég get alveg gert það. Það er ekkert sem gæti tekið okkur í sundur. Eða það vona ég allavega.
Árið 2010 lentum við vinkonurnar í rifrildi við stelpu sem var besta vinkona okkar þá og það var svakalegt rifrildi – alveg hræðilegt. Við sættumst þó við hana og allt varð gott. Við urðum bara svona góðir kunningjar. Núna nýlega erum við byrjaðar að „hanga’’ með þessari stelpu aftur sem er alveg frábært og þessi stelpa er alveg æðisleg.
Hún er alveg rosalega fjörug og skemmtileg stelpa sem ég dýrka og væri alveg til í að fá hana í vinkonuhópinn okkar. Ég held nú samt að hana langi ekkert að vera vinkona mín. Þegar við erum allar saman þá talar hún bara við hinar stelpurnar og djókar í þeim og þær hlæja allar fullt saman og alveg sama hvað ég reyni að vera með þá ýtir hún mér alltaf í burtu og heldur áfram að tala við hinar stelpurnar.
Hún alveg útilokar mig en hinar taka ekki eftir því sem mér finnst mjög leiðinlegt útaf því að ég vil ekki vera að segja þeim að mér finnst hún vera að útiloka mig útaf því að þær mundu segja að það væri bara vitleysa í mér og ég ætti bara að tala við þær þegar við værum allar saman og bara vera með í öllum umræðum.
En það er nú þannig að ég get það ekki ég hef reynt það en hún byrjar bara að tala hærra en ég. Hún hringir aldrei í mig, en hún hringir í allar hinar. Hún býður mér aldrei að vera með í neinu, en hún býður hinum og ég enda með því að þurfa að spyrja.
Reyndar eru bestu vinkonur mínar duglegar að bjóða mér að vera með í einhverju sem er frábært en mér finns þessi stelpa vera að útiloka mig og taka vinkonur mínar frá mér.
Hún reynir allt til að þurfa ekki að hafa mig með. Mér finnst núna líka að vinkonum mínum líki miklu betur við hana heldur en mig útaf því að þær eru alltaf alveg rosalega hressar þegar hún er með okkur og mér finnst það rosalega leiðinlegt. Ekki það að þær eigi að líka betur við mig og ég eigi bara að vera uppáhalds heldur væri það bara rosalega gaman að vera allar jafn góðar vinkonur.
Eins og staðan er núna er ég rosalega hrædd um að missa þær og ef ég missi þær þá veit ég ekki hvað ég geri. Ég vildi bara að þessi stelpa væri ekki að þessu heldur að við gætum bara verið vinkonur. Ég vildi líka að vinkonur mínar tækju eftir þessu en þær gera það ekki.




















