Ég er frekar venjuleg 15 ára stelpa sem hefur það ekkert of gott. Mér líður illa næstum hvern einasta dag og líður stundum eins og ég sé að verða eithvað þunglynd. Þanning er það nefnilega að ég er að æfa íþrótt sem við skulum kalla x og allur minn tími utan skóla fer í að vera í x.
Ég vildi stundum að sólarhringurinn væri meira en bara 24 klst en hann er það ekki og því get ég ekki því miður ekki breytt. Vinkonur mínar og ég erum næstum hættar að tala saman því ég hef aldrei tíma til að hitta þær.
Eftir að ég kom á unglingastig eru einkunnirnar mínar líka farnar að lækka og mér finnst ég útilokuð í skólanum, ráfa ein um gangana og „vinkonur“ mínar tékka ekkert á mér og finnst sjálfsagtað ég sé ekki með þeim, þær eru mjög ólíkar mér og mér fynnst ég ekkert passa við þær.
Þótt mér finnist ömurlegt að segja það þá finnstmér þær skemmtilegar en þær hafa allt öðruvísi skoðanir en ég og mérfinnst ég ekki geta treyst neinni af þeim, ég hef eiginlega verið með þeim af þvíað ég vildi vera með þeim frekar en að vera ein.
Ég átti líka kærast fyrirhálfu ári sem ég var ekkert smá hrifin af sem hætti einmitt með mér af þvíég var svo upptekin. Mér leið auðvitað hræðilega en innst inni var ég þóbúin að vera með mikið samviskubit yfir því að geta aldrei hitt hann og hafði sjálf verið búin að ákveða að slíta sambandinu því ég vildi ekkieyða tímanum hans í mig.
Ég tala er alltaf að tala við alla í skólanum og reyni að vera fyndin hressog skemmtileg og allir eru alltaf til í að spjalla við mig en ég eignastaldrei neina alvöru vini sem ég get treyst því ég hef ekki tíma til aðsinna þeim utan skóla.
Ég hef oft spáð í að hætta bara í x en égget það ekki því það er þetta sem ég elska og vil gera í lífinu, eðaað minnsta kosti þanga til líkaminn minn þolir það ekki lengur.
Ég veit vel að þetta er ekkert miðað við svo margt annað eins og svosem einelti og ofbeldi og slíkt en þetta er vandamálið mitt. Þér þykir það sjálfsagtekkert stórmál en fyrir mér er það stórmál. Mér líður oft eins og ég sé ein íheiminum og hafi engan til að tala við.




















