Ég hef lengi og vel pælt í þessum playerum. Sjálf hef ég lent í nokkrum og var alveg vel særð eftir þá. Það sem ég vil tjá er að strákar eru að taka fyrir sér einhverja fyrirmynd, sem sefur hjá stelpum og hunsar þær svo og særir þær.
Þetta er ekki töff, ég myndi svo sannarlega ekki ef ég væri strákur að nota mitt „dingdong“ aftur og aftur á random stelpum útí bæ, því maður veit aldrei hvað gæti fylgt slíkri hegðun.
Strákar ættu að átta sig á því að þeir eru bara að særa og setja ömurlegt orðspor á sig með því að haga sér eins og fávitar.
Ég hef verið ástfangin einu sinni. Og sú ást endist í 5 mánuði og því mun ég aldrei gleyma, því þetta var æðislegasti strákur sem ég hef á ævinni kynnst og óskaði þess með öllu hjarta að þetta hafi aldrei endað.
Mánuði eftir það samband kynntist ég öðrum strák sem ég var hrifin upp fyrir haus af og er það enn. Við töluðum mikið saman og hittumst loksins og vorum svaka „lovebirds“ og vorum eins og tyggjóklessur saman niður í bæ!
Við enduðum á því að byrja saman og ég hélt að þetta myndi virka en þetta endaði 3 vikum seinna útaf drama í honum.
Ein af mínum bestu vinkonum segir mér nú enn til dags að þessi gaur væri hálfviti og væri búinn að vera að sofa hjá hinni og þessari stelpu og eftir að við hættum saman og vissi ég að þetta væri ekkert annað en player að fá sér á broddinn.
Ætla ekki að hafa þetta langt því ég vildi bara koma því fram eins og margir eru búnir að gera hér að strákar eigi að hætta þessum aulaskap, því þeir eiga eftir að vera ástfangnir á endanum. Best væri að byrja aldrei á þessu því þeir fá á sig slæmt orð svo maður tali ekki um hvað þeir missa af miklu…
Hættið að særa stelpur og reynið að taka ykkur smá saman í andlitinu.




















