Um daginn las ég játningu inn áBleikt.issem hét eitthvað í þessum dúr: ,,Ég hata að vera stelpa”. Ég las hana og fyrsta sem ég hugsaði var: „Um hvað er hún að bulla! Það er æðislegt að vera stelpa.” Svo núna er ég loksins að átta mig á um hvað hún er að tala.
Allt dramað í kringum stelpur er hræðilegt! Allar fara á einn tímapunkt í mánuði (if you know what I mean) þar sem þær verða bara miklu dramatískara en venjulega, og sumar meira en aðrar. Þær ýkja hluti svo aðrar stelpur verða pirraðar út í einhvern annan.
Þær nota orðið „hata” allt of mikið og þær búa til svona lið. Eins og sjá má – Team Jacob – Team Edward. Þær nota svo liðin á móti hvor öðrum til að rakka hvor aðra niður! Halló, við erum ekki í stríði hérna!!
Stundum líður manni bara illa. Það er verið að saka okkur um eitthvað af öðrum stelpum og svo eftir á láta þær eins og þær séu eitthvað svakalega saklausar. Ég er samt ekki að segja að ég hafi aldrei gert þetta! Stelpur er illgjarnar og ég vona að þetta á eftir að skána á eldri árum. Týpískar stelpur að búa til úlfvalda úr mýflugu!
Svo er líka bara ósanngjarnt að strákar fá að pissa standandi!
Kv.
Stelpa sem þarf virkilega að fara að þroskast ásamt öðrum stelpum!




















