Ég hef hugsað mér lengi að skrifa þetta og ákvað loks að láta slag standa. Ég er strákur í kringum tvítugsaldurinn og hef alltaf verið vinsæll og allt það. Ég veit að margir strákar voru eins og ég í grunnskóla og fannst alltaf eins og þeir væru aðalmaðurinn og gætu fengið allar stelpur sem þeir vildu svo við tökum margir okkar „player“ tímabil.
Við tölum um og montum okkur af því hversu heit gellan var sem við sváfum hjá hversu geðveikan rass eða brjóst hún hefur og svo framvegis, við tölum jafnvel um vinkonur stelpurnar sem okkur langar að sofa hjá líka.
Eftir grunnskóla telur maður að strákar ættu að þroskast og vaxa úr þessu player- hlutverki sem við leikum svo vel.
Allt kemur þó fyrir ekki og jafnvel á fyrsta degi í framhaldskóla byrjar þetta: Við skoðum úrvalið og tölum svo um þær við félagana og setjum okkur „target “ og oftar en ekki eru það eldri stelpurnar sem við viljum.
Svona gengur þetta: Það munu alltaf vera svona týpur í hverjum aldurshóp sem ganga bara á milli og særa hverja stelpu á eftir annari og eru staðránir í því og tala um hvað þeir munu aldrei falla fyrir stelpu og hvað þeir vilja ekki vera í sambandi -þeir vilja vera lausir og njóta lífsins og auðvitað eru þeir alltaf aðalmaðurinn.
En hvað með stelpunar sem við særum? Þó stelpur spili að sjálfsögðu líka þennan leik eru þær eru nú ekki margar sem gera það og strákarnir eiga það til að fara langt yfir strikið.
Svo lærir maður….. Stelpur tala og stelpur sleppa engum smáatriðum þær segja frá öllu og þær standa með hvorri annari og verja hvor aðra fyrir þessum týpum.
Ég fékk sjálfur slæmt orð á mig og ég vildi óska það hefði aldrei gerst því engin stelpa vil hitta svona strák sem er bara að hitta hana til að leika sér.
Ég sem hélt ég yrði aldrei hrifinn komst að því að það væri vitleysa því dag einn kynntist ég stelpu í gegnum vinkonu mína. Við skulum kalla hana „X“
Þessi stelpa var alveg frábær hún var sæt,skemmtileg,fyndin stundaði íþróttir og bara algjörlega mín týpa; Ég gat ekki hætt að hugsa um hana.
Ég talaði ekki við neinar aðrar stelpur og reyndi ekki við neina ég vildi hætta þessum fáranlega leik sem ég hafði ætíð spilað.
Við byrjuðum að tala saman fyrst bara rólega en svo fórum við að tala daglega sms-ast og tala saman í síman nánast hverju kvöldi. Þetta stóð yfir í smátíma og við hittumst nokkrum sinnum en við sváfum aldrei saman – það var í mesta lagi bara kossar og kúr yfir mynd.
Allt í einu hún byrjaði að láta skringilega, hætti að svara sms-unum mínum kom alltaf með afsakanir um hún væri of upptekin fyrir símtal og fleira.
Ég skildi ekkert í þessu en ákvað þó að spyrja hana hvað væri í gangi. Fyrst vildi hún ekkert segja sagði bara hún hefði ekki tíma sem stendur en ég vildi ekki trúa því – það var einhvað annað að.
Svo ég hélt áfram að spurja og tuða í henni af hverju hún léti svona hún vissi hversu hrifinn ég væri af henni.
En þá kom loksins svarið…
„Segiru þetta við bara allar gellur sem þú talar við?“ Ég spurði hana hvað hún meinti með því og þá kom ræðan…
Vinkona hennar hafði spurt hana hvernig við þekktumst og hún auðvitað svaraði að við værum að tala saman og búin að vera gera það í þó nokkurn tíma.
Þá hafði vinkona hennar sagt henni frá því hvernig ég HAFÐI verið… Stelpa sem þekkti mig ekkert, bara heyrt sögur af mér og hvernig ég var frá einhverjum sem hún þekkti hvernig ég væri að nota stelpur og hefði sofið hjá vinkonu hennar og aldrei talað síðan við hana aftur. Alltaf spilað mig rosalega góðan gæja en síðan verið algjör fáviti.
Ég reyndi að útskýra fyrir henni að þannig hefði ég verið ég væri ekki svona lengur ég hefði ekki talað við neinar aðrar stelpur í þessa 3-4 mánuði eftir að ég kynntist henni.
Ég væri bókstaflega yfir mig hrifinn af henni og hún væri stelpan sem mig langaði að vera með…
En hún hlustaði ekki á mig – hún sagði að fólk gæti ekki breyst svona fljótt
kannski var það rétt kannski ekki það eina sem ég veit er að daglega næstu mánuðina sá ég eftir því hvernig ég hefði verið.
Ég hafði misst af æðislegri stelpu fyrir heimskupör og vitleysu fyrir athygli strákanna en eina sem maður hafði viljað var athygli þessara stelpu.
Núna eru liðin í kringum 3 ár síðan þetta var og ég hef breyst þökk sé vinkonum mínum sem hjálpuðu mér að falla ekki aftur í þennan player heim
Einn daginn stuttu eftir þetta kynntist ég annari stelpu mér leist vel á hana og nákvæmlega það sama gerðist um leið og ég var byrjaður að falla fyrir henni..
Einhver „vinkona“ hennar sagði henni sögur en það var ekki hvaða stelpa sem er…heldur hafði hún hitt þessu margumræddu X í partyí sem hún var stödd í og hafði ég borist í tal þar.
Sama hvað ég reyndi að útskýra fyrir henni vildi hún ekki hlusta hún trúði frekar X svo þetta samband endaði.
Eftir þetta tók ég mér bara pásu ákvað að vera ekkert að tala við stelpur ég nennti ekki þessu veseni og þessum sögum og hafði ég staðið við það í mjög langan tíma
þar til ég var með vinkonu minni og við rákumst á stelpu sem hún þekkir og hún er fallegasta stelpa sem ég hef séð. Ég fékk hnút í magann og gat ekki tekið augun af henni.
Mig langaði að tala við hana en ég varð allt í einu of feiminn við það ég hafði aldrei lent í því áður.
Ég addaði henni svo á Facebook og við fórum að tala saman og okkur líkaði við hvort annað það sást alveg langar leiðir…
Hún hafði allt: Útlit, persónuleika og hún hafði stórkostleg áhrif á mig. Þetta fór svo að verða alvarlegra og alvarlegra hjá mér.
Við höfum verið að tala saman núna í dágóðan tíma og alveg rekist á hvort annað einstaka sinnum og sést en aldrei gert neitt almennilega í því. Meðal annars vegna þess að ég þori ekki að gera neitt af hættu að það muni eyðileggjast útaf einhverjum sögum.
Hún er fullkomin mér og hefur aldrei liðið svona áður. Ég vona að þegar ég þori að taka skrefið þá muni það ekki vera eyðilagt vegna þess hvernig ég var. Ég vil að fólk sjái mig eins og ég er í dag.
Það sem ég vil segja við strákana ekki vera þessir playerar því einn daginn munuð þið finna stelpu sem þið viljið vera með – ég lofa ykkur því og þið viljið ekki að það eyðileggist útaf orðspori og sögum.
Og stelpur: Sumir strákar geta breyst þið verðið bara að treysta því og ef þið eruð hrifnar af honum gefið honum séns og sjáið hvernig hann er!
Það eiga sér allir fortíð nútíð og framtíð
Til dæmis ég:
Fortíð = Ungur heimskur player sem lék sér og særði því mér fannst það töff
Nútíð = Hrifinn upp fyrir haus af stelpu sem mér finnst fullkomin fyrir mig og ég vil enga aðra en er hræddur um afleiðingar fortíðarinnar
Framtíð = Maður verður bara bíða og sjá vonandi mun hún vera með stelpunni sem ég vil vera með




















