Ókei stelpur, ég er alls ekki að segja að það séu allir strákar slæmir eða vilji særa stelpur. Ég þekki strák sem er algjörlega fullkominn og kemur alltaf vel fram við mig, en ég hef hinsvegar lent í mjög slæmum strák sem var að reyna að neyða mig í hluti sem ég vildi ekki gera og þessvegna vil ég bara segja við ykkur stelpur að aldrei fara í bíl með strák sem þið hafið aldrei verið einar með áður því að þið vitið aldrei hvert hann fer eða hvað hann gæti gert.
Sérstaklega yngri stelpur því þið eruð oftast „auðveldari týpurnar“. Það eru til svo margir strákar sem fara í svo ungar stelpur og reyna að misnota þær áeinhvern hátt, segja að hún sé sú rétta, sú eina, fullkomin, og svo endalaust af svona sweet talki, sem stelpur með lítið sjálfstraust eiga mjög auðvelt meðgleypa og trúa.
Ég er ekki að segja að allir strákar séu bara að „playa“ sig góðan, sumir eru eflaust mjög góðir og myndu aldrei særa þig. En plís taktu vinkonu þína með þér nokkur skipti fyrst áður en þú treystir honum til að vera einn með þér.
Strákar eru æðislegir en sumir geta verið virkilega vondir samt.




















