Ég skil vel hvað þú meinar að þér finnist þetta óþægilegt en ég held að þú sért ekki alveg að fatta að það er pínu „pointið.“
Mér finnst eins og fólk sé ekki alveg að skilja Facebook. Hér er fólk með síðu um sig sjálft. Síðan sýnir myndir af manni, atburði, vini og SKOÐANIR. Skoðanir okkar eru stór hluti af okkur og auðvitað eiga þær heima á Facebook. Hvort sem þú sért sammála þeim eða ekki.
Fólk er farið allt of mikið út í „viðkvæm mál“. Nú, jæja. Eina leiðin til þess að komast út úr fornaldartímabilinu var að tala um þessi „viðkvæmu mál.“
Fólk verður að geta sagt skoðun sína án þess að fá skammir vegna þess einhver pirrar sig á því að þurfa að fletta yfir „like“ á síðu. Það er nú alveg rétt hjá þér. Þú þarft samt ekki að pirra þig á því.
Ég sjálf póstaði svona myndbandi því ég vildi sína vinum mínum að svona væri til. Fólk er í alvöru svona vont við dýrin sín. Og að þetta væri eitthvað sem þyrfti að LAGA.
Mér langar ekki að lifa í minni friðsælu veröld og ekki hugsa um hluti sem mér finnst snerta mig of. Oftast á maður að hugsa um svona hluti því þeir koma við mann og breyta einhverju.
Mér finnst að hver og einn á Facebook ætti nú alveg að geta póstað hlutum á sína síðu sem hann eða þau vilja deila með vinum sínum. Auðvitað máttu hafa þína skoðun og er hún jafn gild og allra annarra. Alveg nákvæmlega jafn gild og þeirra.
Það eru ofboðslega mismunandi skoðanir um hvað á heima á Facebook og hvað ekki. Auðvitað eru nokkrir hlutir sem fólk mætti alveg láta ífriði en mér finnst mikilvægt að enginn sé bældur niður. Sama hver afstaða hans er.
Hvort sem það eru myndbönd af villimönnum að meiða hundsgrey, skoðun á ostategund eða barátta fyrir björgun regnskóganna eða simpansa.
Sama hvernig hlutirnir eru komumst við aldrei áfram og við getum aldrei skilið skoðanir annarra nema við TÖLUM UM ÞÁ og tjáum SKOÐANIR okkar.
Á Facebook fáum við tækifæri til þess að vekja fólk til vitundar um hvað okkur finnst skipta máli.
Sjálf þori ég því ekki. Mér hefur oft langað að setja inn myndband af hænum við ræktun (sem þú borðar, býst ég við ) en geri það ekki því fólki finnst það of viðkvæmt. Það vill ekki hugsa um hvað það borðar.
Hlutirnir eru til að deila, tala og komast að sameiginlegri,lýðræðislegri sátt um. Ef fólk hefur ekkert annað sjónarmið nema sitt eigið til þess að miða út frá breytist sjónarmið þess aldrei.
Hvort sem að þau breyta þínu eða þú þeirra (svona líka agree to disagree) Alveg eins og svertingjar fengu ekki sinn rétt fyrr en einhver fór að tala um það „viðkvæma mál“ og tjáði skoðanir sínar um villimennsku hvíta mannsins gagnvart þeim.
Við erum komin spöl í tjáningarfrelsi en þó eru margir hlutir sem enn eru á bannlistanum. Hjá mörgum, ekki öllum. Kannski bara þessum „viðkvæmu.“
Ég er kannski núna meira að tala um daglegt líf, en markmiðið hjá mér er að segja við ykkur að skoðanir eru til að við getum líka myndað okkar eigin og svo sannarlega eru til mismunandi skoðanir.
Ef þér finnst óþægilegt að horfa á villimenn meiða hunda – ekki gera það. Hlutirnir eru svona sáraeinfaldir. Auðvitað eru sumir að pósta þessu bara til þess að láta stelpur eins og þig segja: „Oj! Greyið!“
En margir eru einnig að posta svona hlutum til að vekja fólk til meðvitundar að þessir hlutir eru í gangi og þá þarf að laga. Við þurfum að berjast gegn ofbeldi hvort sem á dýrum eða mönnum.
Og við VERÐUM að geta tjáð skoðanir okkar hvort sem á Facebook eða annarstaðar.
Alveg eins og þú hafðir þinn rétt til að tjá þessa skoðun þína hef ég líka rétt til að tjá mína.
Þó ég sjái þetta allt öðruvísi, þakka ég þér fyrir sjónarmiðið.




















