Sæl nafnlaus. Þegar ég var að lesa játninguna þína þá fann ég fyrir því hvað þetta var líkt sambandinu sem ég var í. Fyrir utan það að hann laug upp í opið geðið á mér að hann ELSKAÐI MIG.
Allavega þá ætla ég að ráðleggja þér að slíta öllum samskiptum við hann, sem fyrst og helst í gær. Hunsaðu allt frá honum. Eyddu öllum minningum um hann, hvort sem það eru myndir í tölvunni eða myndir á heimilinu þínu. Eyddu einnig minningum sem minna þig á hann.
Það erfiðasta við að fara úr sambandi í að vera einhleypur er að venja sig af rútínunni sem þið höfðuð sem par. Hvort sem það var að fara á uppáhaldsveitingarstaðinn ykkar um helgar, eða að ganga um bæinn ykkar saman. Þú þarft strax að byrja að finna þér nýja hluti til að gera, ekki undir neinum kringumstæðum sitja heima hjá þér í sjálfsvorkunn og hugsa um hann og hvað þið áttuð hreint „æðislegt“ líf saman.
Ég las í játningunni að það er komið ár síðan sambandið slitnaði, og þú ert enn að spá í honum og vilt tala við hann. Það gefur auga leið að þú ert engan veginn búin að jafna því á honum og það gæti verið útaf eftirfarandi:
Þú ert enn að hafa samband við hann.
1. Hættu því strax. Eyddu nr. hans úr símanum þínum, ef þú manst það reyndu þá að gleyma því. Eyddu honum algjörlega úr lífinu þínum, og þannig að þið getið haft einhverskonar samskipti ykkar á milli, þá meina ég facebook accountið hans, msn, skype oflr.
2. Þú ert enn að svara skilaboðum frá honum, hvort sem þau eru símhringingar, gegnum internetið eða SMS.
3. Hunsaðu öll skilaboð sem þú færð frá honum. ÖLL. Ekki einu sinni líta á þau, eyddu þeim bara samstundis. OG ALLS EKKI SVARA ÞEIM!
Þú ert enn að rekast á hann.
Þú ættir að vita t.d. hver uppáhalds skemmtistaðurinn hans er, með hvaða liði hann æfir, ef hann er í líkamsrækt þá ættir þú að vita í hvaða líkamsræktarstöð hann sækist í o.s.frv. Reyndu eins og þú getur að komast hjá því að fara á þessa staði sem hann er oftast á. Finndu þér nýja staði, og ef þú rekst á hann ekki stoppa til þess að eiga samskipti við hann, hvort sem hann stoppar þig til þess að tala við þig eða öfugt. Þú skalt einungis ganga upprétt og brosa til hans og ganga beint áfram og alls ekki líta við.
Það tók mig í kringum átta mánuði að jafna mig á mínum fyrrverandi eftir að ég sleit öll samskipti við hann, og í dag sé ég hann eins og aðrir sjá hann og voru búin að benda mér hvernig hann er. Í dag er ég miklu hamingjusamari án hans en með honum, og ég er nærgætin að fara ekki rakleiðis í samband eftir að ég kynnist nýjum strák.
Það er augljóst að þessi strákur hefur lítinn sem engan áhuga á þér. Ef hann vill þig aftur til sín, er það einungis tímabundið og er vegna þess að hann er einmanna og sama klausan mun endurtaka sig og þú verður særðari fyrir vikið. Hann myndi ekki koma svona fram við þig ef hann væri hrifinn af þér, og þú átt eftir að finna fyrir því þegar strákur verður virkilega hrifinn af þér, og það er allt öðruvísi en það sem þessi strákur er að sýna þér.
Gangi þér svo einstaklega vel með þetta allt saman og ég vona að þú eigir eftir að fara eftir mínum ráðum, því ég var einfaldlega í nánast sömu sporum og þú.




















