Ég er ekki unglingur, en hef unnið í ýmiskonar afgreiðslu og þjónustu frá unglingsaldri. Ég get verið algjörlega sammála játningunni því að Íslendingar margir hverjir mega fara að bera meiri virðingu fyrir afgreiðslufólki. Það er skammarlegt hvað fullorðið fólk leyfir sér að koma illa fram við afgreiðslufólk, og hvernig það leyfir sér að rífast og skammast í um hluti sem viðkomandi starfsmaður hefur enga stjórn á.
Hinsvegar, ef kúnni er ósáttur með umgengnina á klósettinu, þá er það jú okkar vandamál, þrátt fyrir það að það sé ekki okkur að kenna, þrátt fyrir að kúnninn gangi um klósettið eins og útikamar, þá er það okkar að sjá til þess að það bitni ekki á næsta kúnna. Ef varan er gölluð eða illa gerð, þá er það okkar „vandamál“ sem starfsmanns, þrátt fyrir að það sé ekki okkur að kenna.
En margir Íslendingar mega oft spyrja sig áður en þeir hella sér yfir afgreiðslustúlkuna í Bónus yfir verðhækkunum, hversu mikið vald hún hefur í rauninni yfir þessum verðhækkunum, og muna að þær bitna líka á afgreiðslustúlkunni sem hefur væntanlega ekki hækkað í launum til móts við verðhækkanirnar í fyrirtækinu, og í guðanna bænum ekki skamma hana fyrir það hvað útrásarvíkingarnir sem eiga fyrirtækið hennar séu miklir skíthælar! Hún hefur hreinlega ekkert með það að segja og er væntanlega bara ánægð með að vera með vinnu!
Þrátt fyrir að ég geti ekki sagt að ég sé fullkomlega sammála öllu sem kom fram í þessari grein, er ég sammála meginatriðum þessarar greinar. Það er skammarlegt hversu margir eru dónalegir við afgreiðslu- og þjónustufólk! Þvílíku svívirðingarnar og skammirnar sem maður þarf að þola fyrir það eitt að standa í afgreiðslu og þjónusta fólk eftir bestu getu!
Ég get nánast lofað því, að ef þið fáið slæma þjónustu hjá fyrirtæki, að manneskjan sem tekur á móti ykkur annað hvort í síma eða í eigin persónu er ekki ábyrg fyrir því sem kom fyrir þig, og hefur því ekki gert neitt til að vinna sér inn dónaskap og leiðindi frá fullorðnu fólki sem ætti að sjá sér það fært að koma fram sem slíkt.
Fæst ykkar væru stolt af börnunum ykkar ef þau kæmu svona fram, og flest ykkar væru hoppandi brjáluð ef komið væri svona fram við börnin ykkar. Hugsið aðeins út í það….




















