Ég er frekar ung stelpa og segi eins og er, það er ekki alltaf best að vera mjór. Ég sjálf er mjó og kannski svolítið meira en mjó. Í fyrra var ég enn grennri og mjög létt miðað við aldur.
Ég hef oft heyrt setningar á borð við þessar:
„Þú verður að borða meira!“
„Þú ert svo mjó!“
„Þú ert OF mjó!“
„Þú ert eins og tannstöngull þú ert svo mjó!“
og fleiri í þessum dúr. Þetta er kannski ekki illa meint en sumir myndu taka þessu illa. Þið skiljið kannski ekki hvað ég meina, en ef þið spáið í það er ekkert endilegabetra að vera mjórri en en þykkari þegar maður er á mínum aldri.
Oft hefur verið sagt við mig að ég verði að borða meira en það er erfiðara en það sýnist, nú hugsið þið kannski að það sé ekkert mál að borða meira þegar maður vill og þótt maður sé saddur er ekkert mál að borða smá auka. En þannig er þetta ekki hjá mér, í hvert skipti sem ég borða meira enmagafylli þá fæ ég magaverk og mér verður illt í klukkutíma eða meira.
Af minni reynslu held ég að það sé ekkert léttara að fitna heldur en grennast. Ég veit reyndar ekki hvernig er að vera í megrun en ég held að það sé ekki erfiðara. Megrun er minni sársauki en reynir kannski meira á styrk. Það eru ekki margir sem vilja vera illt í maganum í marga tíma á dag til að fá nokkur kíló. Þannig hugsa ég stundum.
Það er líka munur að vera grannur en mjór. Að vera sagður grannur er oftast hrós en mjór er meira niðurlægjandi. Þið sem segið svona ætlið kannski ekkert að gera það en ef þið skoðið setningarnar heyrið þið mun.
„Þú ert svo grönn.“ Það er verið að hrósa manni fyrir að vera aðeins minna en venjulegt er eða bara fínn. „Þú ert svo mjó.“ Nú er komin meiri dýpt í atugasemdina. Sá sem er verið að tala um er meira en grannur…„mjór“ þýðir „aðeins of grönn/grannur.“
Þeir sem eru í sömu stöðu og ég taka þessu öðruvísi. Ef þú ert í aðeins þykkari kantinum er ég viss um að þér þætti hrikalega móðgandi ef til dæmis vinkona þín myndi segja: „Þú ert svo feit,“ og láta svo sem ekkert sé. Svona upplifi ég þetta. Vínkona mín hefur sagt við mig: „Þú ert svo mjó.“ Mér finnstþað ekki gaman þar sem þetta er eitthvað sem ég ræð ekki við.
Það á til dæmis ekki að dæma lesblint fólk fyrir að geta ekki lesið. Ég veit að þetta er ekki sami hluturinn en er orðin svo þreytt á að láta segja eitthvað svona við mig.
Því miður er mjög algengt að svona sé látið gossa á grennra fólk. Það á að veraalveg hrikalegt þegar það er sagt við þyngra fólk: „Þú ert feit/ur.“
Það hefur gleymst að grennra fólk er í sömu sporum.




















