Ég er 17 ára strákur á höfuðborgarsvæðinu. Lífið mitt er frábært og nánast allt gengur mér í hag. Ég stend mig frekar vel í skóla og á marga vini, frábæra kærustu og fjölskyldu sem er mér allt. En þó er eitt mál sem mér þykir óskaplega leiðinlegt og sorglegt.
Flest við unglingarnir erum byrjuð að fikta við drykkju og ætla ég ekki að ljúga að ég sé sjálfur byrjaður að drekka. En það er þó ekki það sem veldur mér hugarangri. Það er tóbaksneysla jafnaldra minna. Sjálfur hef ég aldrei og mun aldrei neita tóbaks í nokkurskonar formi eða með nokkurskonar leiðum.(það er reykja, taka í vörina, taka í nefið o.s.frv.)
En þó að þið foreldrarnir haldið að þið séuð tóbakskynslóðin þá þykir mér frekar leiðinlegt og afar grátlegt að tilkynna ykkur að svo sé ekki, heldur erum það við, börnin ykkar. Ég á fjölmarga vini en ég veit fyrir víst að aðeins ég og tveir aðrir vinir mínir höfum aldrei neitt tóbaks á neinn hátt. Krakkar fara niður í bæ og fá sér „bara einn smók‘‘ eða „reykja bara á djamminu‘‘ sem er KJAFTÆÐI!
Krakkar á mínum aldri eiga ekki að koma nálægt þessu! Afhverju er það að allir hafa prófað að minnsta kosti einu sinni? Ég gæti nefnt yfir tuttugu nöfn á vinum mínum og félögum sem hafa prófað að reykja, taka í vörina eða taka í nefið eða jafnvel prófað að reykja gras.
Hvað er í gangi með það? Allt niður í 14 eða 13 ára krakkar sem eru byrjuð að reykja, reykja af og til gras og taka í vörina á hverjum degi? Finnst ykkur þetta í lagi? Finnst ykkur þetta vera heilbrigt?
Sjálfum finnst mér þetta ekki vera heilbrigt! Sjálfum finnst mér þetta ógeðslegt!
Ég er að tala um krakka vel undir lögaldri sem ekki einungis drekka, sem jú er fáránlegt ég viðurkenni það, en reykja líka og margir hverjir reykja gras. Gerðu það fyrir mig, ef þú ert foreldri unglings sem þú veist að drekkur, endilega talaðu við hann um reykingjar og tóbaksneyslu.
Það gæti skipt sköpun, þú gætir bjargað krakkanum þínum frá tóbaksdjöflinum!




















