Játning: Unglingar sem vinna í sjoppum eru líka fólk!
12.12.2011 Nafnlaust

Mig langaði aðeins að tala um sjoppustörf. Ég sjálf/ur vinn í búð og hef unnið þar í nokkur ár. Það sem mig aðallega langaði að ræða er hvernig komið er fram við unglinga og mjög oft bara fullt af fólki sem vinna í búð.

Ég vil bara minna fólk á það, og ég tala nú ekki um fólk sem að þarf lítið til að pirra, að ef þið eruð einhverra hluta vegna ósátt við matinn ykkar eða ísinn ykkar er ekki nógu stór, sósan nær ekki niður á brauðformið, allt of lítill laukur á pulsunni þinni, stóllinn þinn vaggar og það brakar í honum, tappinn á kókflöskunni þinni er beyglaður, hamborgarinn er ekki með nógu mikla tómatsósu, það er vond lykt á klósettunum og ég get talið upp endalaust, að ef að þetta er eitthvað sem pirrar ykkur.. þá er það í FLESTUM tilvikum..ég endurtek FLESTUM tilvikum ekki unglinganna vandamál.

Við erum ekki grillarar í verslununum, tæknilega séð megum við það ekki. Við vitum aldrei hvað þér finnst vera 100% flottur ís, og hvað þér finnst vera 100% góð pulsa. Við sjáum ekki um viðgerðir á stólunum, við setjum ekki tappana á flöskurnar, við hvað þá sjáum ekki um að gefa frá okkur góða lykt inn á klósettunum og ef að sápan er út um allt og bréfið, þá er það ekki starfsfólkinu að kenna, heldur kúnnunum.

Þeir sjá ekki sóma sinn í því að þurrka sér snyrtilega og henda því í tunnurnar, og þeir geta ekki hitt sápunni í lófann á sér, og aftur segi ég að allaveganna í flestum tilvikum sjáum við ekki um grillið. Þegar ég tala um unglinga er ég að tala um unga krakka á aldrinum 14-16 jafnvel 17 ára.. sem fá vinnu í sjoppu.

Dæmi um það hvernig sjoppustörf geta nú tekið á taugarnar..þá fékk ég vinnu í búð fyrir nokkrum árum. Ég mætti alltaf kát/ur og glöð/glaður í vinnuna og vildi allt fyrir kúnnana gera. Ég spurði þau kurteisislega hvort ég gæti eitthvað aðstoðað þau en fékk því miður ekki nógu oft jákvæð og hressandi viðbrögð.

Yfirleitt var rakkað niður allt sem ég gerði. Hitt og þetta sem ég var ennþá að læra var ekki nógu gott hjá mér, allt var ömurlegt. Fólk kvartaði undan því að unglingar á mínum aldri ættu ekki að fá vinnu í svona sjoppum.

Mér fannst þetta strax ömurlegt. Ég sem kom bæði í þeim tilgangi að hafa eitthvað að gera, reyna jafnvel að gleðja annað fólk með því að brosa og vera jákvæð í vinnu.. en fékk aldrei þau viðbrögð sem ég vildi fá til baka. Og þá tala ég ekki um að ég vildi að fólkið kæmi til mín á handahlaupum og öskraði góðan daginn svo hátt að varirnar rifnuðu í tvennt.. þvert á móti! Ég vildi bara fá bros og kurteisislegt „Góðan daginn“ J

Það sitja allar leiðinlegar minningar í mér, þegar fólk kemur öskrandi inn, rífst og skammast í mér, ætlast svo til þess að ég sé að fara að gera einhverja lúxus pulsur handa þeim, risastóra og bragðgóða shake-a, og steiki svo safaríkan og djúsí hamborgara á eftir.

Auðvitað hef ég ekki mikla ánægju af því að gera eitthvað flott og framandi fyrir þann sem öskrar og skammast í mér og nýtur þess. Hann sest ánægður inn í sal, búin að fá það sem hann vildi… og brjóta niður saklausan ungling, sem ætlaði bara að sýna kurteisi og hlýju.

Við unglingar hefðum líka alveg getað sleppt því að sækja um vinnu í öllum þessum sjoppum, en ég get lofað ykkur því að þið fengjuð jafnvel minni afgreiðslu þá. Ég veit um mörg tilfelli þar sem að unglingarnir í sjoppunum eru stór partur af búðinni.

Við röðum í hillur, við fyllum á allt fyrir ykkur, við hlaupum um alla búð til að sækja það sem ykkur vantar, og til að ná í hitt og þetta fyrir kúnnana. Við tökum af borðunum, þurrkum af þeim, vöskum upp diskana ykkar, og hendum ruslinu eftir ykkur.. við meira að segja RÖÐUM stólunum eftir ykkur!

Það er að sjálfsögðu mjög notalegt að labba inn í búð, upp að afgreiðsludömunni/drengnum.. öskra og garga af lífs og sálarkröftum eins og þú getur hvað allt sem hann gerir sé ömurlegt, biðja svo um dýrasta og flottasta hamborgarann sem er til þarna…láta þjóna sér til borðs, og svo þarftu ekki einu sinni að hafa fyrir því að raða stólnum þínum og ganga frá eftir þig. Nei ég geri það fyrir þig!

Langaði bara að minna ykkur á þetta, þið sem lesið þetta að unglingar hafa líka tilfinningar. Þetta er mjög sárt að fá svona skítakomment á sig fyrir hvað sem maður reynir að gera fyrir kúnnann.

Ég vil frekar fá hrós…það hvetur mig áfram til að gera fleiri góða hluti. Ef þér mislíkar eitthvað geturu alveg eins sagt það í kurteisistóni og bent mér vingjarnlega á það. Ég þigg það frekar heldur en öskur og garg.

Við erum framtíðin.. stattu vörð um framtíðina, í staðinn fyrir að brjóta hana niður um leið og við reynum að sýna hvað í okkur býr.

Gefðu okkur tækifæri.

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Hlín Einarsdóttir
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]

Ritstjórn
22.5.2012

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla

heillakedja forsida

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um eina milljón króna í tilefni þess að fyrirtækið var apríl-hlekkur keðjunnar. Starfsfólk VÍS lagði söfnuninni einnig lið með eigin heillakeðju og safnaði 275 þúsund krónum í sínum ranni. Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS segir þátttöku VÍS í Heillakeðjunni hlekk í samfélagslegri [...]

Aðsendar greinar
22.5.2012

Alma Rut: Útigangsmenn eru líka fólk

loftur forsida

Það var fimmtudagur og ég var á leið til vinnu í miðbæ Reykjavíkur. Ég lagði bílnum hjá gamla Landakotsspítalanum og gekk niður brekkuna sem liggur að Alþingishúsinu. Í fjarlægð sá ég nokkra menn sitja á bekk. Ég gekk framhjá þeim þegar hávaxinn skeggjaður maður lítur til mín, heilsar og brosir.  Augu hans voru sérstök , [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Vannst þú í Facebook-bingóinu?

bingo st

FYI: Þetta er kallað vinningur í Facebook-bingóinu!  

Ritstjórn
22.5.2012

Nýjasta stjarnan í Þýskalandi: Anuri

anuri

Er maður sætastur eða hvað? F’ólk flykkist nú í dýragarðinn í Wuppertal í Þýskalandi til að berja augum ísbjarnarhúninn Anuri. Enda afskaplega fallegur!  

Ritstjórn
22.5.2012

Mér var sagt ég gæti orðið hvað sem er…

hvad sem er lil

…svo hvað gerðu þeir? Fyndnustu myndir sem þú munt sjá í dag!   Heimild: Reddit

Ritstjórn
22.5.2012

Það er svo gott að sofa!

sofa lil

Hver kannast ekki við þetta…?  

Ágústa Arna
22.5.2012

Að morgni leikdags (já, ég er júró-nörd!)

agusta arna

Árið 1986 stigu þau Eiríkur Hauksson, Helga Möller og Pálmi Gunnarsson í fyrsta sinn á svið fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (fyrirbæri sem hér eftir verður bara kallað Júróvision) í fyrsta sinn. Það væri lygi að segja að væntingarnar hafi verið engar þegar Icy hópurinn steig á svið enda var landinn með það [...]

Nafnlaust
22.5.2012

Játning: Mælikvarði á sanna vini

vinir

Hver er mælikvarðinn á sanna vini ? Á hverjum einasta degi heyrir maður eitthvað nýtt sem á að segja manni út á hvað sannur vinur gengur. Þeir eru til staðar fyrir þig þegar þú þarfnast þess mest. Það er grunnlínan. En hver og einn er mismunandi, svo hvernig maður mælir sanna vini hlýtur barasta að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah