Miðvikudaginn 1.febrúar nk. hefst 5 skipta krakkajóganámskeið í jógasal Ljósheima.
Þetta er fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára og kennari er Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir barnajógakennari.
Við gerum skemmtilegar jógaæfingar, fræðumst örlítið um jóga,kynnumst JÓGADÝRUM, förum í fjölbreytta leiki sem þjálfa athygli, örva samhæfing, hreyfiþroska, slökum á og margt fleira. Á námskeiðinu kemur svo eitt JÓGADÝR í heimsókn.
Í seinasta tímanum kemur foreldri/foreldrar með í tímann og þá verða kenndir leikir sem þið getið farið í saman eftir að námskeiði lýkur. Ef foreldrar komast ekki er í góðu lagi að bjóða ömmu/afa eða öðrum úr fjölskyldunni með í tímann.
Námskeiðsdagar eru eftirfarandi miðvikudagar kl 15:45-16:30:1.febrúar, 8.febrúar, 15.febrúar, 29.febrúar og 7.mars.
Verð 6.500,-kr.
Skráning hafin hjá Arnbjörgu Kristínu í s: 862-3700 eða
arnbjorgkristin@ljosheimar.is.
www.ljosheimar.is




















