Nú gengur hátíð í hönd og hefur fólk það misjafnlega gott. Ég vil að allir muni að jólin snúast ekki um peninga og prjál. Þau snúast um allt annað en það: Þau eru hátíð barnanna, friðar, ljóss og samveru með þeim sem standa okkur næstir.
Mikið hefur verið fjallað um skort ýmissa aðila í samfélaginu. Sumt höfum við fjallað um hér á Bleikt og hefur undantekningalaust borist tölvupóstaflóð í kjölfarið frá fólki sem endilega vill hjálpa á einhvern hátt. Þykir mér það sýna að þeir sem hafa það sæmilegt vilja endilega leggja sitt af mörkum til að sem flestir geti notið hátíðarinnar á sem bestan hátt.
Grundvallarþarfir okkar mannsins snúa að líkamlegum, andlegum og félagslegum þörfum. Munum að jólin eru tími þess félagslega frekar en þess líkamlega. Ekkert er að því að borða góðan mat, en fátt jafn óþægilegt að vera búinn að borða yfir sig! Þess vegna mæli ég frekar með því að fólk hugi að félagslega þættinum og þeim andlega en þeim líkamlega. Hugsum um heilsuna og fólkið okkar og finnum hvað það er gott svona í svartasta skammdeginu.
Hugsum um börnin okkar – það er mér efst í huga einmitt núna. Að sjá gleðisvip barnanna þegar allir eru glaðari og hamingjusamari en vanalega er dýrmætara en allt annað.
Gleðileg jól, kæru lesendur og takk fyrir samfylgdina á þessu fyrsta ári vefsins.




















