Jóna Lind er 21 árs stelpa úr Grafarvoginum. Hún lauk námi í bílasprautun og er núna að læra hárgreiðslu. Bleiki Mustanginn hennar fer ekki framhjá neinum. Alla vega líkar okkur á Bleikt.is afar vel við bílinn.
Jóna er búin að eiga bílinn í eitt ár og er ástæðan fyrir bleika litnum einfaldlega sú að hana langaði að eiga stelpubíl. Bílinn keypti hún klesstan og var hann sprautaður í þessum stórkostlega lit á ágúst síðastliðnum.
Jóna Lind hefur verið með bíladellu alla tíð og er ekkert útlit fyrir að sú della dvíni á næstunni.
Myndir: HS MOTORSPORTPHOTO




















