Norska söngkonan Josefin, sem tekur þátt í Voice söngvakeppninni á norsku sjónvarpsstöðinni TV2, dvaldist í eitt og hálft ár á Íslandi, samdi lag á íslensku sem heitir „Búinaðþví“.
Josefin er 25 ára gamall tónlistarmaður frá Björgvin í Noregi. Hún tekur þátt í söngvakeppninni The Voice sem sýnd er á TV2 í Noregi á föstudagskvöldum. Í frétt um Josefin á vef TV2 kemur fram að hún hafi heillast af Íslandi þegar hún kom í fimm daga heimsókn til vinkonu sinnar hingað til lands.
Hún hafi ílengst í eitt og hálft ár, lært íslensku og samið lag á Íslensku. Lagið fjalli um sambandsslit og hvernig haldið er áfram eftir ástarsorgina en ekki er hún spurð nánar út í þá sálma.
„Ég skrifa venjulega á ensku,“ segir Josefin í fréttinni hjá TV2. „Svo ætlaði ég að semja á norsku en einu orðin sem komu út úr höfðinu á mér voru íslensk svo að þannig varð það,“ er haft eftir henni.
Josefin er flink tungumálamanneskja því að hún lærði íslensku á fimm mánuðum. Hún segist ekki flytja til annars lands án þess að læra tungumálið sem þar er talað. Íslendingar verði líka svo glaðir þegar það komi einhverjir sem vilji læra tungumálið þeirra. Þetta sé jú tungumál sem aðeins 300 þúsund einstaklingar tali.
Josefin telur að Íslendingar hafi mikið sjálfstraust þegar tónlist er annars vegar. Vegna Bjarkar og Sigur Rósar haldi þeir að allir íslenskir listamenn geti orðið heimsþekktir.
HÉR má sjá myndbandið




















