Kærleikshátíðin verður haldin í Reykjavík í dag og þá er nú upplagt fyrir allar fjölskyldur að klæða sig vel og mæta niður á Austurvöll klukkan tvö því að þar verður kærleiksrík stund í boði.
Safnast verður saman fyrir framan styttu Jóns Sigurðssonar og gengið hringinn í kringum Tjörnina. Í göngunni verða eldgleypar og fleira skemmtilegt á dagskrá. Gangan endar svo fyrir framan Iðnó þar sem göngumenn taka lagið saman. Allir kórar eru velkomnir að Iðnó. Þar verður einn kórstjórnandi, Gróa Hreinsdóttir, sem stjórnar fjöldasöng göngumanna og kórsöngvara.
„Við endum á því að syngja saman og hlýja okkur fyrir framan Iðnó,“ segir Bergljót Arnalds, rithöfundur og leikari, sem er hugmyndasmiður Kærleikshátíðarinnar. Kærleikshátíðin á upphaf sitt strax eftir hrun og hefur verið haldin einu sinni á ári síðan.
„Hátíðin er hugsuð til að efla samkennd og veita hlýju og styrk, minna okkur á að við búum í samfélagi og að það er ástæða fyrir því að við erum saman í félagi. Við þurfum hvort á öðru að halda, allir eru mikilvægir í samfélaginu. Þetta er líka erfiðasti árstíminn. Hugmyndin er að kveikja ljós í hjörtum og minna okkur á ástina og það sem skiptir mestu máli í lífinu, tíma og samskipti sem kostar yfirleitt ekki neitt. Mestu gleði okkar í lífinu fáum við í gegnum samskipti við fólkið sem við elskum, við að elska og vera elskuð. Það var grunnhugmyndin á bak við hátíðina,“ segir Bergljót.
Kærleiksdagur er í Reykjavík í dag, laugardaginn 4. febrúar og hittist svo vel á að þá er líka langur laugardagur og allar verslanir opnar miðbænum.
Á Austurvelli er dagskráin fjölbreytt. Svavar Knútur syngur, Sönglist og leikhópurinn Perlan koma einnig fram. Matti Sax spilar á harmonikku og kemur með kórinn sinn Vocal Project. Veraldarvinir koma með meðmælaspjöld með áletrunum á ýmsum tungumálum.
Borist hafa gjafir frá öðrum bæjarfélögum sem verða notaðar á kærleiksdeginum. Akureyrarbær hefur til dæmis látið skera út íshjörtu og bæði Árborg og Kópavogur senda hlýjar kærleikskveðjur, Árborg í formi 50 hjartalaga gasblaðra sem verða í Götuleikhúsinu og Kópavogsbær sendir rauð kærleikshjörtu og englabúninga. Norski sendiherrann ætlar svo að koma og tala.
„Mér fannst Norðmenn standa sig vel í fyrra þegar hryðjuverkaárásirnar gengu yfir og þeir einblíndu á kærleikann í kjölfarið. Þau fallegu ummæli féllu að ef einn maður getur gert allt þetta með hatri hvað getum við þá öll gert með kærleikanum,“ segir Bergljót og bætir við að Norðmenn hafi verið góð fyrirmynd.
„Það eru ekki margar þjóðir sem hafa brugðist við ofbeldi á þennan hátt, ekki með hefndaraðgerð eða reiði heldur kærleika. Þetta er til eftirbreytni hjá Norðmönnum,“ segir hún.
Þá má geta þess að Gegga myndlistarkona hefur hannað súkkulaðibros sem hún kallar Smæler. Súkkulaðibrosin eru úr dökku súkkulaði og eins og bros í laginu. Gegga gerði þau á sínum tíma til styrktar Unicef og nú verða þær Bergljót og Gegga á Austurvelli til að gefa gestum og gangandi 1.000 súkkulaðibros til að verma hjartað og létta lund.
Litur hátíðarinnar er rauður og er fólk hvatt til að koma í einhverju rauðu ef það á. Með mínútu þögn verða sendir jákvæðir straumar til samfélagsins.




















