Búið er að velja köku ársins en efnt var til keppni innan Landssambands bakarameistara um köku sem verðskuldar þennan titil. Átján kökur bárust í keppnina sem er metþátttaka.
Keppnin var haldin í samstarfi við sælgætisgerðina Freyju og kakan inniheldur meðal annars ljúffenga Freyju karamellu, hnetur og súkkulaði. Að venju er mikið í kökuna lagt, hún er samsett úr mörgum gómsætum lögum og hjúpuð með karamellu- og súkkulaðihjúp.
Höfundur hennar er Stefán Hrafn Sigfússon starfsmaður í Mosfellsbakaríi. Hann hlaut peningaverðlaun frá LABAK og glæsilega gjafakörfu frá Freyju.

Dómarar í keppninni voru Þóra Ólafsdóttir, Samtökum iðnaðarins, Olga Sigurðardóttir, Freyju og Ásgeir Þór Tómasson, deildarstjóri bakaradeildar Hótel- og matvælaskólans.
Sala á kökunni hefst um helgina í bakaríum félagsmanna LABAK um allt land og verður til sölu það sem eftir er ársins.




















