Karítas Ósk í Kenýa: „Grét þegar ég sá aðbúnað barnanna“
02.02.2012 Ritstjórn

Fyrirsætan Karítas Ósk fór til Kenýa og hjálpaði til við byggingu skóla þar úti. Hún segir aðbúnaðinn hafa almennt verið hryllilegan fyrir börn en í ABC skólanum og heimavistinni hafi aðbúnaðurinn verið betri þar sem börn ættu íslenska styrktarforeldra.

Við fengum Karítas til að segja frá dvölinni:

Ég sá auglýsingu um tíu vikna námskeið hjá ABC skólanum en Bryndís er skólastjóri og sá hún um undirbúning námsins. Þróunarstarfsemi vakti mig mikið til umhugsunar áður en ég fór í skólann. Ég hafði heyrt margar sögur um hjálparstörf sem glíma við spillingu og þjófnað. ABC skólinn breytti hugarfari mínu gagnvart þessu og sá ég að það væri hægt að hjálpa þó að ég ein gæti ekki gert allt.

Fljótlega eftir að skólanum lauk þá pantaði ég flug til Nairobi í Kenýa ásamt níu öðrum hetjum. En þar er ABC skóli staðsettur og er hann í umsjón Þórunnar sem er íslensk kona.

Þegar ég kom út varð þetta fyrst raunverulegt fyrir mér. Fyrsta skiptið sem við heimsóttum krakkana þá gat ég ekki annað en grátið. Þarna sá ég mörg hundruð börn saman kominn og tóku þau á móti okkur með gleði og söng. En öll þessi börn eiga íslenska styrktarforeldra.

Ég tók líka eftir því að eldri börnin sem höfðu verið lengur tóku utan um litlu börnin sem voru nýkominn inn í skólann. En mörg þeirra áttu sér draum um að hjálpa öðrum börnum þegar þau væru orðin stór.

Við fórum svo í heimsókn til nokkurra foreldra og fengum að sjá heimilisaðstæður barnanna sem ekki voru á heimavist en fara þó í skóla ABC. Undantekningarlaust var ástandið slæmt allsstaðar og mikil neyð var á þeim öllum. En það að börnin gátu farið í skóla breytti mjög miklu sérstaklega vegna þess að þar fá þau að borða og hafa læknisþjónustu. En menntun gefur líka von um betra líf fyrir börnin.

Þegar við komum fyrst í skólann gátum við ekki séð að þessi börn hafi þurft að fara í gegnum mikla erfiðleika og hungur. Það var stór munur að sjá börnin sem voru í ABC skólanum og þeim sem voru ekki í skólanum. ABC leggur mikla áherslu á ást, umhyggju og kærleika. Enda voru börnin sem búa á heimavistinni hjá þeim glöð og er námsárangur þeirra framúrskarandi í Kenýa.

Við fórum í safaríferð þar sáum við náttúrulíf í Kenýa. Um kvöldið leit ég til himins en ég hef aldrei séð jafn margar stjörnur á einu augnabliki og gerði ég mér þá grein fyrir hvað Guð er stór.

Seinustu dagana í ferðinni fórum við í Massaia þorp en það er ættbálkur sem er útbreiddur í Kenýa. Þeir eru þekktir meðal annars fyrir að stökkva hæð sína. Það var tekið á móti okkur með handabandi fólk í allskonar litskrúðugum klæðnaði með allskyns skart. Okkur stelpunum þótti skartið þeirra og klæðnaður mjög heillandi. Þetta annars ágæta fólk býr við allt aðra menningu og siði en við. Það sem þeim finnst vera eðlilegt finnst okkur alveg hræðilegt.

Þar eru t.d. ungar stelpur umskornar fyrir giftinguna á hryllilegan hátt með glerbroti eða öðru beittu áhaldi. Margar hverjar láta lífið mjög fljótlega á eftir vegna sýkinga. Þær eru giftar sem börn og mennirnir eiga oft fjórar konur fyrir og geta verið allt að áttatíu ára gamlir. Stelpurnar fá ekkert um það ráðið því í raun og veru eru þær bara seldar.

Ein af stúlkunum frá þessu þorpi komst í gegnum Peninu í heimavist ABC í Nairobi. Penina er kona sem hefur hjarta fyrir því að sjá þetta ofbeldi gegn konum stoppa. Þessi stúlka sem komst í heimavistina er frá þessu Massaia þorpi og útfrá henni kviknaði áhugi á að hjálpa þessu fólki.

Í dag er ABC að byggja skóla þarna í massaia þorpinu en nú eru þegar kominn hundrað og tuttugu börn í þann skóla.

Núna þarf þó nýja styrktaraðila fyrir þessu – 120 börn sem eru að hefja skólagöngu sína og kostar það rúmar 3000 kr fyrir hvert barn. Okkur þótti mjög sérstakt og skemmtilegt að fá að taka þátt í að byggja þennan skóla meðan við vorum þarna úti. Lengi vel hugsaði ég það er hvort eð er aldrei hægt að bjarga öllum því það er svo mikið að fólki sem sveltur og býr við ofbeldi. En eftir að hafa komið þarna út og hitt börnin sem ég er sjálf að styrkja þá sá ég að þarna hafði ég raunverulega bjargað mannslífum.

Öll erum við eins þráum að sjá börnin okkar vaxa, eiga von og framtíð. Kæri lesandi ég vona að þetta veki þig til umhugsunar.Símanúmerið hjá ABC er 414-0990.

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Stelpurnar í Júník voru að fá SJÚKLEGAR buxur!

budin buxur

Júník í Smáralind: Voru að fá buxur aftur sem ruku út á sínum tíma. Eftir langa bið eru þær komnar aftur og eru algerlega að slá í gegn! Þær eru með þvílíkt úrval af glænýjum vörum og er búðin ein sú heitasta í bænum í dag! BUXURNAR! BÚÐIN!